Áhugavert

si0112

20.1.2012 : Sjóræningjar í Suðurhöfum

Á 16. öld sigldu Spánverjar með fullfermi af gulli og silfri frá Suður-Ameríku um Karíbahaf og heim til Spánar. Stjórnvöld í Bretlandi og á Frakklandi gáfu þá út sérstök leyfisbréf og gátu handhafar þeirra látið greipar sópa um spænsku skipin án þess að kallast ræningjar. Þannig hófst gullöld sjórána í Karíbahafi Lesa meira
 
ml0411

6.12.2011 : Höfuðið á bakvið Baggalút

Nýtt Mannlífsblað er komið í verslanir, fyrsta tölublað nýs ritstjóra og ættu allir að finna efni við sitt hæfi.

Bragi Valdimar Skúlason, Baggalútur og gleðipinni, er í forsíðuviðtali. Hann er framkvæmdastjóri og hugmyndasmiður hins skemmtilega hóps sem kennir sig við Baggalút og hann talar m.a. um fjölbreytt verkefni, feimnina, upphafið að Baggalút, tilraunir til að hneyksla og hugbúnaðarfyrirtæki sem hann stofnaði

Lesa meira
 
he0511

10.11.2011 : Heilsan

Heilsan er komin út. Tímaritinu er dreift frítt og þú getur nálgast þitt eintak í helstu stórverslunum, líkamsræktarstöðvum og á fleiri stöðum. Að venju er umræðuefnið heilsutengt og fjölbreytt. Fjögur fjölbreytt viðtöl eru í blaðinu, þá er fjallað húð, hár, neglur, líkama og sál Lesa meira
 
hh1011

14.10.2011 : Baðblaðið

Haustið kallar á kósíheit við kertaljós, haustlitaferð á Þingvelli, slökun í heitu pottum sundlauganna og allt hitt sem er svo notalegt. Eða þá að nýta tímann inni við; bretta upp ermar og græja heimilið. Taka til hendinni og gefa, henda eða selja það sem ekki er lengur í notkun, breyta og bæta. Við mynduðum fjölmörg baðherbergi að þessu sinni sem flest eru nýuppgerð og ættu að gefa góðar hugmyndir fyrir þá sem eru í slíkum pælingum Lesa meira
 
ml0311

8.9.2011 : Kemst upp með allt

Sumarið er á förum og haustið læðir sér inn með fyrirheit um skemmtilega daga. Á haustin er mikið um að vera í stangveiði og skotveiði og gerum við því skil í þessu blaði *//* Andri Freyr, sem var á flandri í sumar og heldur úti skemmtilegasta morgunþætti landsins með henni Gunnu Dís sinni á Rás 2, fær að láta gamminn geysa í aðalviðtalinu *//* Við skoðum heimasmíðaðar flugvélar, sportbíla, snyrtivörur og ræðum við hana Ingu á Nasa Lesa meira
 
he0311

12.5.2011 : Heilsan

Tímaritið Heilsan er komið út og að þessu sinni helgum við blaðið börnunum, fjölskyldunni og sambandinu. Katrín Jónsdóttir, fyrirliði, ræðir um skipulagið sitt og Björn Margeirsson, maraþonhlaupari, um hvernig hann byrjaði að hlaupa maraþon fyrir tilviljun. Slökun er tekin fyrir - skref fyrir skref, sykurneysla barna, matartíminn, garðurinn og svo margt fleira Lesa meira
 
he0211

9.3.2011 : Heilsan

Heilsan er komin út með allskyns skemmtilegum fróðleik um húð, hár, neglur, líkama og sál. Að þessu sinni er blaðið tileinkað fjölskyldunni, uppeldi og hvernig við getum skipulagt tíma okkar betur. Viðtöl við þrjár sjálfstæðar konur sem eru að gera það gott í lífinu á ýmsan hátt eru í blaðinu ásamt förðunartískunni fyrir vorið. Hugo Þórisson, sálfræðingur, fræðir lesendur um uppeldi og við skoðum leyndarmál heilans

Lesa meira
 
bar

10.2.2011 : Lífið er leikur

Elsku börnin, eða öllu heldur herbergin þeirra, hafa verið okkur hugleikin undanfarnar vikur en ekki búa öll börn svo vel að eiga sérherbergi. Þau fátækustu verða að láta sér nægja að hafast við í pappakassa undir berum himni á meðan önnur búa á munaðarleysingjaheimilum með mörgum öðrum börnum; þau eru heppin miðað við götubörnin sem sofa í pappakössunum. Blessuð börnin okkar hér á Íslandi hafa það því ansi gott, þau hafa húsaskjól og flest eiga þau líka sérherbergi stútfullt af leikföngum Lesa meira
 
heilsan

10.1.2011 : Heilsan

Heilsan er nú að komin út með fróðlegum viðtölum, molum og upplýsingum sem varða heilsuna okkar, andlega og líkamlega. Húðin, hárið, líkaminn og sálin eru sem áður okkar aðalumfjöllunarefni og reynum við að hafa blaðið sem fjölbreyttast.

Lesa meira
 
Gestgjafinn-bokin

11.11.2010 : Gestgjafinn 30 ára

Árið 2011 markar merkileg tímamót fyrir Gestgjafann þar sem tímaritið á 30 ára afmæli. Þrjátíu ár er hár aldur fyrir tímarit á Íslandi og því tökum við örlítið forskot á sæluna og fögnum afmælinu með útgáfu nýrrar bókar.

Við sýnum brot af því besta af síðum Gestgjafans undanfarin ár, þó ekki undanfarin 30 ár, það er efni í enn stærra og viðameira verk. Hér höldum við okkur frekar við nútímann

Lesa meira
 
he1001

21.10.2010 : Heilsan

Í þessu nýja tímariti tökum við fyrir alls kyns hreyfingu sem í boði er á líkamsræktarstöðvum en við gerum okkur einnig grein fyrir því að stundum kemst fólk einfaldlega ekki á líkamsræktarstöðvarnar, tímaleysi í sumum tilfellum og peningaleysi í öðrum. Við skoðum hvernig við getum rifið okkur upp úr sófanum og byrjað að hlaupa og hvaða líkamsræktaræfingar er gott að gera heima við Lesa meira
 

24.9.2010 : Forsíðusamkeppni Júlíu

Í Vetrargarðinum, Smáralind, laugardaginn 9. október verður forsíðusamkeppni Júlíu haldin öðru sinni. Skráðu þig núna og ekki missa af þessu tækifæri! Lesa meira
 

23.9.2010 : Villa í svörum

Ritstýra SÖGUNNAR ALLRAR biður lesendur blaðsins afsökunar á leiðum villum í svörum við SÖGUGETRAUNINNI í 9. tbl., septemberheftinu. Rétt svar við spurningu 6 er A og rétt svar við spurningu 9 er B.

Lesa meira
 
innlit

19.8.2010 : Flott heimili

Hún hefur unnið hjá Fritz Hansen og IKEA í mörg ár og fengið tækifæri sem flestir í bransanum verða að láta sér nægja að dreyma um. Sigríður Heim­isdóttir iðnhönnuður hannaði afmælisútgáfuna af Svaninum eftir Arne Jacobsen árið 2007 og það nýjasta frá henni eru líffæri úr gleri fyrir Vitra Design Museum og CMOG. Fjölskyldan hefur búið í heillandi húsi í Malmö en ætlar að segja bless við Svíþjóð og flytja til Íslands. Við fengum að kíkja inn áður en þau hófust handa við að pakka niður

Lesa meira
 
kogga

19.8.2010 : Ein en ekki einmana

Kogga segir lífið vægast sagt hafa breyst við fráfall Magnúsar. „Við vorum eitt af þessum pörum sem gera allt saman. Við vorum ekki bara hjón, heldur líka bestu vinir og samstarfsmenn.“ Kogga segir að þau hjónin hafi ekki leitað mikið eftir félagsskap annarra. „Okkur fannst gott að vera saman og fundum mikla fullnægju í því að tala saman um lífið, listir, heimspeki, tónlist og andleg málefni.Við gátum endalaust velt upp nýjum hliðum á tilverunni til að skoða á allan mögulegan hátt Lesa meira
 
sveppir2

19.8.2010 : Sveppir svo góðir

Nú stendur sveppatíminn sem hæst en hann stendur að jafnaði frá miðjum júlí og fram að fyrstu frostum. Margir eiga sína uppáhalds­staði til að tína sveppina á og fara ár eftir ár í tínslu. Flestir þurfa að láta leiðbeina sér nokkuð og eru jafnvel hræddir við að sveppirnir getir ver­ið eitraðir. Það er þó hinn mesti misskilningur. Best er að tína sveppi í þurru veðri eftir rigningar. Ekki er gott að tína blauta sveppi því þá eru þeir slímugir og slepjulegir. Útbúnaður fyrir sveppatínslu er ekki flókinn Lesa meira
 
prjona

11.6.2010 : Kannt þú að prjóna?

Vikan efnir til prjónakeppni og eru vegleg verðlaun í boði. Eina sem þú þarft að gera er að senda VIKUNNI mynd af setti - húfu, trefli og vettlingum - eftir þig, ásamt uppskriftinni, og þú getur unnið ferð á Hótel Rangá ásamt ársbirgðum af garni frá A4.

Lesa meira
 
gaddakylfan

3.5.2010 : Keppt um Gaddakylfuna

Mannlíf og Hið íslenska glæpafélag óska eftir sögum í hina árlegu glæpasmásagnakeppni Gaddakylfuna.

Gaddakylfukeppnin er nú haldin í sjöunda sinn. Glæpafélagið hélt keppnina fyrst í samvinnu við Grand Rokk árið 2004 en ári síðar hætti Mannlíf sér út á refilstigu glæpasagnanna, gekk til liðs við Glæpafélagið og síðan þá hefur keppnin verið kennd við Gaddakylfuna, vígalegan verðlaunagripinn sem veittur er þeim sem skrifar bestu smásöguna hverju sinni

Lesa meira
 
NL-Untitled-2_co

21.1.2010 : Hörkutól sem elskar að klæða sig upp á

Íslenska þjóðin batt strax miklar vonir við Evu Joly þegar hún birtist í Silfri Egils og sagði það sem þjóðin þráði að heyra, ekki síst vegna tals ráðamanna þess efnis að ekki þýddi að leita sökudólga efnahagshrunsins. Hún talaði fyrir nauðsyn þess að hugsanleg efnahagsbrot, markaðsmisnotkun bankanna og undanskot fjármuna í skattaskjól yrðu rannsökuð af fullum þunga og þeir sóttir til ábyrgðar sem hana bæru Lesa meira
 
GE-1001-38-4

21.1.2010 : Ofurfæði

Mörg okkar eru búin að fá nóg af endalausum predikunum um lausnir sem eiga að duga til að gera okkur hamingjusöm, grönn og falleg með lágmarks fyrirhöfn. Þetta eru alls kyns megrunarkúrar, hreinsanir, afeitranir o.s.frv. Við á Gestgjafanum höllumst að þeim einföldu sannindum að þegar öllu er á botninn hvolft sé það skynsemin sem segi okkur hvernig best sé að haga lífi okkar til að viðhalda heilsu Lesa meira
 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.