Áhugavert
Heilsan
Út er komið nýtt tímarit frá Birtíngi útgáfufélagi.
Tímaritið Heilsan mun koma út annan hvern mánuð og vera frítt blað sem dreift verður í allar helstu verslanir á landinu og líkamsræktarstöðvar.
Með lækkandi sól og kólnandi veðri fá ansi margir löngunina til þess að hreinsa til í lífstílnum, taka sig á í matarræði og að hreyfa sig. Í þessu nýja tímariti tökum við fyrir alls kyns hreyfingu sem í boði er á líkamsræktarstöðvum en við gerum okkur einnig grein fyrir því að stundum kemst fólk einfaldlega ekki á líkamsræktarstöðvarnar, tímaleysi í sumum tilfellum og peningaleysi í öðrum. Við skoðum hvernig við getum rifið okkur upp úr sófanum og byrjað að hlaupa og hvaða líkamsræktaræfingar er gott að gera heima við.
Þá virðist það stundum gerast að með allri þessari auka hreyfingu, tómstundum barnanna, skyldum og kröfum að við gleymum okkar eigin sálarró. Heilsan leitaði þar af leiðandi til jógakennara sem sýndi okkur sniðugar og einfaldar æfingar sem allir geta gert heima í stofunni þegar ró á heimilinu er náð.
Í blaðinu eru einnig viðtöl við fjórar flottar konur sem eru að gera góða hluti í tilverunni. Auk þess skoðum við ýmislegt fleira sem er hollt fyrir líkamann, hárið, húðina og sálina.
„Hugmyndin er að koma með blað sem er skemmtilegt og jákvætt, fjalla um málefni sem varða okkur öll og benda á sniðugar lausnir við daglegum vandræðum“ segir Halldóra Anna Hagalín, ritstjóri Heilsunnar.
Viðtökur hafa verið frábærar og er Heilsan uppseld hjá útgáfunni.

