Áhugavert
Gestgjafinn 30 ára
Ný matreiđslubók frá Gestgjafanum er komin út!
Áriđ 2011 markar merkileg tímamót fyrir Gestgjafann ţar sem tímaritiđ á 30 ára afmćli. Ţrjátíu ár er hár aldur fyrir tímarit á Íslandi og ţví tökum viđ örlítiđ forskot á sćluna og fögnum afmćlinu međ útgáfu nýrrar bókar.
Viđ sýnum brot af ţví besta af síđum Gestgjafans undanfarin ár, ţó ekki undanfarin 30 ár, ţađ er efni í enn stćrra og viđameira verk. Hér höldum viđ okkur frekar viđ nútímann.
Í ţessari bók eru meira en 160 uppskriftir ađ gómsćtum réttum og lögđ er sérstök áhersla á kökurnar og sćtu réttina og einnig er í bókinni ađ finna frábćra smárétti og veislurétti, kjöt- og fiskrétti, grćnmetisrétti og flottan morgunverđarkafla.
Bókin er frumleg, freistandi, ómótstćđileg og nýstárleg en um leiđ hefđbundin. Hér er 30 ára reynsla á einum stađ međ öllu ţví jákvćđa sem reynslan gefur. Ritstjórar bókarinnar eru Guđrún Hrund Sigurđardóttir og Sólveig Baldursdóttir. Guđrún Vaka Helgadóttir ađstođađi dyggilega viđ alla uppsetningu. Úlfar Finnbjörnsson og Sigríđur Björk Bragadóttir eru matarhönnuđir flestra uppskriftanna og Ólöf Jakobína Ernudóttir er stílisti. Linda Guđlaugsdóttir, yfirhönnuđur Birtíngs, hannađi bókina.
Ţađ er alltaf tilefni til ađ gera vel viđ sig og sína međ góđum mat og ţví ber bókin undirtitilinn Í tilefni dagsins.
Verđ: 4.990 krónur.
Áskrifendur Gestgjafans fá 20% afslátt.

