Áhugavert
Höfuðið á bakvið Baggalút
Nýtt Mannlífsblað er komið í verslanir, fyrsta tölublað nýs ritstjóra og ættu allir að finna efni við sitt hæfi.
Bragi Valdimar Skúlason, Baggalútur og gleðipinni, er í forsíðuviðtali. Hann er framkvæmdastjóri og hugmyndasmiður hins skemmtilega hóps sem kennir sig við Baggalút og hann talar m.a. um fjölbreytt verkefni, feimnina, upphafið að Baggalút, tilraunir til að hneyksla og hugbúnaðarfyrirtæki sem hann stofnaði um það leyti sem tölvubólan sprakk.
Sölvi Óskarsson í tóbaksbúðinni Björk leynir á sér og í spjalli við blaðamann kom t.d. í ljós að hann þjálfaði fótboltalandslið Færeyinga! Við veltum líka fyrir okkur hverjir koma til greina í forsetakosningunum á næsta ári, fjöllum um fjarstýrðar flugvélar sem eru að breyta stríðsrekstri í heiminum, spjöllum við íslenska kynlífsfíkla, rýnum í stöðu kínverska kommúnistaflokksins sem er níræður í ár, gefum hugmyndir að jólagjöfum, kennum að hnýta bindishnúta og gefum einföld ráð til að sigra lífið. Við fengum líka nokkra af fremstu kokkum landsins til að elda dýrindisrétti fyrir hátíðarnar og gefa uppskriftir að þeim, skoðuðum einn áhugaverðasta jeppa landsins og kynntum okkur póker á Íslandi.
Græjur, tíska, veiði, vín og fótbolti er líka á sínum stað í brakandi fersku blaði!

