Áhugavert

NL-Untitled-2_co

Hörkutól sem elskar að klæða sig upp á

21.1.2010

Íslenska þjóðin batt strax miklar vonir við Evu Joly þegar hún birtist í Silfri Egils og sagði það sem þjóðin þráði að heyra, ekki síst vegna tals ráðamanna þess efnis að ekki þýddi að leita sökudólga efnahagshrunsins. Hún talaði fyrir nauðsyn þess að hugsanleg efnahagsbrot, markaðsmisnotkun bankanna og undanskot fjármuna í skattaskjól yrðu rannsökuð af fullum þunga og þeir sóttir til ábyrgðar sem hana bæru. Kannski er ekkert skrítið að fólk hafi bundið vonir við þessa konu, enda er orðspor hennar til þess fallið. Eva fór fyrir rannsókn á stærsta fjársvika- og mútumáli sem farið hefur fyrir dómstóla í Frakklandi, svokölluðu Elf-máli. Hún lét ekki bugast þrátt fyrir að allt hafi verið gert til þess að skaða málsóknina og líf hennar hafi verið í hættu. Hún þurfti lífvarða við og á endanum flutti hún til Noregs til þess að geta lifað eðlilegu lífi á ný. Nú er hún ráðgjafi sérstaks saksóknara hér á landi sem rannsakar hugsanleg lögbrot í tengslum við efnahagshrunið.

Óleystur vandi er orkusuga

Til að öðlast þann feril og þá reynslu sem Eva Joly hefur að baki þarf kraft, orku og hugrekki. „Ég held að orkan sé ekki takmörkuð innra með okkur en það er ýmislegt sem getur orðið þess valdandi að við töpum orkunni. Óleystur vandi getur til að mynda verið orkusuga og eins er mikilvægt að forðast átök við fólk til þess að halda þreki. Ég er þess fullviss að æska okkar hefur mikið um það að segja hvaða möguleika við höfum á því að láta að okkur kveða.

Smá bútur úr mögnuðu einkaviðtali við Evu Joly.

Úr 1. tölublaði Nýs Lífs 2010.

Skoða meira um blaðið



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.