Áhugavert

gaddakylfan

Keppt um Gaddakylfuna

3.5.2010

Mannlíf og Hiđ íslenska glćpafélag óska eftir sögum í hina árlegu glćpasmásagnakeppni Gaddakylfuna.

Gaddakylfukeppnin er nú haldin í sjöunda sinn. Glćpafélagiđ hélt keppnina fyrst í samvinnu viđ Grand Rokk áriđ 2004 en ári síđar hćtti Mannlíf sér út á refilstigu glćpasagnanna, gekk til liđs viđ Glćpafélagiđ og síđan ţá hefur keppnin veriđ kennd viđ Gaddakylfuna, vígalegan verđlaunagripinn sem veittur er ţeim sem skrifar bestu smásöguna hverju sinni.

Höfundar hafa ađ mestu frjálsar hendur svo lengi sem ţeir fást viđ glćpi af einhverju tagi í smásögunum. Tekiđ er á móti sögum á netfanginu gaddakylfan@birtingur.is en dómnefnd skipuđ fulltrúum Mannlífs og Hins íslenska glćpafélags tekur síđan viđ ţeim og velur ţćr bestu úr.

Skilafrestur rennur út á miđnćtti í lok dags ţann 17. maí og verđa úrslit kunngjörđ međ athöfn í byrjun júní.

Verđlaun verđa veitt fyrir ţrjár bestu sögurnar. Höfundur bestu sögunnar fćr auk ţess Gaddakylfuna, sem listakonan Kogga hannar. Ţá verđa verđlaunasögurnar ţrjár birtar í nćsta tölublađi Mannlífs sem kemur út í júní. Mannlíf áskilur sér einnig rétt til ţess ađ velja fleiri innsendar sögur til birtingar.

Sigurvegari Gaddakylfunnar í fyrra var Ingvi Ţór Kormáksson fyrir sögu sína Hliđarspor. Halldór E. varđ í öđru sćti međ söguna Rask og Edda Jóhannsdóttir í ţví ţriđja međ söguna Helvítis vetrarsól.

Á međal sigurvegara síđustu ár eru Jón Hallur Stefánsson, sem átti sigursöguna fyrsta áriđ sem keppnin var haldin (áđur en Gaddakylfan kom til sögunnar), og Gunnar Theodór Eggertsson. Jón Hallur hefur undanfarin ár getiđ sér gott orđ sem glćpasagnahöfundur, er höfundur bókanna Krosstré og Vargurinn sem Bjartur gaf út, og hefur fengiđ bćkur sínar gefnar út erlendis. Gunnar Theodór hefur ekki látiđ mikiđ fyrir sér fara í glćpasagnageiranum frá ţví honum áskotnađist Gaddakylfan, en hins vegar fékk hann Íslensku barnabókaverđlaunin síđastliđiđ haust fyrir söguna Steindýrin.

Ađ ţessu sögđu er rétt ađ ítreka ađ ritstjórn Mannlífs hvetur alla til ađ senda sögu í keppnina, hvort sem ţeir hafa litla, mikla eđa nákvćmlega enga reynslu á hinum hála og blóđi drifna ritvelli.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


ţetta vefsvćđi byggir á eplica. eplica vefsvćđivefsvćđi - nánari upplýsingar á heimasíđu eplica.