Áhugavert
Kannt þú að prjóna?
Vikan efnir til prjónakeppni og eru vegleg verðlaun í boði. Eina sem þú þarft að gera er að senda VIKUNNI mynd af setti - húfu, trefli og vettlingum - eftir þig, ásamt uppskriftinni, og þú getur unnið ferð á Hótel Rangá ásamt ársbirgðum af garni frá A4.
Vegleg verðlaun í boði
1. verðlaun - Hótel Rangá, kvöldverður, gisting og morgunmatur, ásamt ársbirgðum af garni frá A4
2. verðlaun - Ársáskrift að tímariti* að eigin vali, auk 6 mánaða birgða af garni frá A4
3. verðlaun - Ársáskrift að tímariti* að eigin vali
Sendu okkur uppskriftina þína og þú gætir átt möguleika á að vinna.
Myndir þurfa að berast fyrir 1. september 2010 á netfangið vikan@birtingur.is.
Hægt er að senda póst á vikan@birtingur til að nálgast frekari upplýsingar
*Ársáskrift að mánaðartímariti eða 6 mánaða áskrift að vikutímariti: Gestgjafinn, Hús og híbýli, Nýtt Líf, Goal, Júlía, Séð og Heyrt, Vikan.

