Áhugavert

sveppir2

Sveppir svo góðir

19.8.2010

sveppirNú stendur sveppatíminn sem hæst en hann stendur að jafnaði frá miðjum júlí og fram að fyrstu frostum. Margir eiga sína uppáhalds­staði til að tína sveppina á og fara ár eftir ár í tínslu.

Flestir þurfa að láta leiðbeina sér nokkuð og eru jafnvel hræddir við að sveppirnir getir ver­ið eitraðir. Það er þó hinn mesti misskilningur. Best er að tína sveppi í þurru veðri eftir rigningar. Ekki er gott að tína blauta sveppi því þá eru þeir slímugir og slepjulegir.

Útbúnaður fyrir sveppatínslu er ekki flókinn. Gott er að hafa með í för tágakörfur eða pappakassa og vasahníf. Það verður að leika loft um sveppina þannig að það er ekki gott að setja þá í plastpoka.

Hundruð sveppategunda vaxa hér á landi og flestar þeirra eru ætar.

Ómissandi fyrir byrjendur er að hafa með sér bókina Villtir matsveppir á Íslandi eftir þær Ásu Margréti Ásgrímsdóttur og Guðrúnu Magnúsdóttur.

Frábær bók með góðum upplýsingum og myndum.

Úr 11. tölublaði af Gestgjafanum



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.