Áhugavert

he0511

Heilsan

10.11.2011

Heilsan er komin út. Tímaritinu er dreift frítt og þú getur nálgast þitt eintak í helstu stórverslunum, líkamsræktarstöðvum og á fleiri stöðum. Að venju er umræðuefnið heilsutengt og fjölbreytt. Fjögur fjölbreytt viðtöl eru í blaðinu, þá er fjallað húð, hár, neglur, líkama og sál.

Bára Magnúsdóttir, eigandi JSB: „Starf mitt gefur mér góða orku og ég er þakklát því að starfa við það sem stendur hjarta mínu næst“

Þórdís Filipsdóttir, Qi gong kennari: „Hreyfingin mín er ekki eitthvað eitt ákveðið, heldur er hún allskonar. Ég skokka, hjóla, syndi, geng, stunda Qi Gong, sjósund, lyftingar, dans og margt fleira“

Elmar Freyr Elíasson, einkaþjálfari: „Ég veit hvað það er að þurfa að berjast við líkama sinn og ég get miðlað af minni reynslu og skil hvernig fólki finnst hlutirnir stundum óyfirstíganlegir“

Ingunn Hauksdóttir: „Þegar maður er með ung börn er maður ef til vill að hugsa um aðra hluti. Ég var ekki eins fókuseruð á að njóta lífsins“

Svefnraskanir / Heilsan er dýrmæt / Þurr húð / Hvar og hvenær sem er ? / Gott samband / Einfaldaðu lífið / Hárið að hausti / Óhefðbundin líkamsræktarnámskeið og margt fleira.

Fjölbreytt og skemmtilegt!



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.