Auglýsingar
Birtíngur útgáfufélag
Birtíngur útgáfufélag er umfangsmesta tímaritaútgáfa landsins. Fyrirtækið gefur út 9 tímarit, en þau eru Gestgjafinn, Hús og híbýli, Heilsan, Júlía, Mannlíf, Nýtt Líf, Sagan Öll, Séð og Heyrt og Vikan. Markmið Birtíngs er að bjóða upp á ánægjulega skemmtun og afþreyingu fyrir alla fjölskylduna með útgáfu vandaðra tímarita þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi.
Tímaritin eru öll í fremstu röð og hafa notið mikilla vinsælda íslenskra lesenda í áraraðir. Vikan hefur komið út í yfir 70 ár og Gestgjafinn og Nýtt líf í rúm 30 ár. Samtals eru áskrifendur tímarita okkar stór hluti landsmanna. Að auki eru samningar Birtíngs við alla stórmarkaði landsins og aðra helstu sölustaði þannig að þeir tryggja öllum tímaritum okkar bestu fáanlegu staðsetningu í verslunu. Hægt er að fullyrða að engin tímarit nái betur augum almennings en tímarit Birtíngs.
Vefsvæði þetta er ætlað til upplýsinga fyrir auglýsendur og inniheldur það allar helstu upplýsingar um útgáfu Birtíngs. Hér finnur þú almennar upplýsingar um tímaritin, stærðir auglýsinga, verð og hver er auglýsingastjóri hvers tímarits fyrir sig.
Það er von okkar að hér finnir þú allar upplýsingar sem þarf til þess að meta kosti okkar tímarita sem auglýsingamiðils en ef þú óskar eftir frekari upplýsingum hvetjum við þig til þess að setja þig í samband við okkur og við veitum þá allar frekari upplýsingar.

