Hús og Híbýli
Hús og híbýli
Hús og híbýli (12 tölublöð) er tímarit sem er orðið rótgróið á íslenskum tímaritamarkaði og á sér yfir 30 ára sögu. Hús og híbýli er mánaðarblað sem tekur fyrir þemu í flestum tölublöðum og má þar nefna Eldhúsblaðið, Baðblaðið, Sumarhúsablaðið, Garðablaðið og Barnaherbergjablaðið.
Blaðamenn og ljósmyndarar blaðsins heimsækja falleg, áhugaverð og öðruvísi heimili fólks úti um allt land og mikil áhersla er á að myndirnar í blaðinu séu vandaðar og fallegar.
Listamenn og vinnustofur þeirra eru líka heimsóttar og í hverju blaði er sýnt hvernig fólk getur breytt húsgögnum eða einhverju öðru heima hjá sér sjálft. Blaðið fylgist líka með því sem er að gerast í hönnun og tískustraumum sem snúa að því að fegra heimilið.
Hús og híbýli er fullt af hugmyndum og ráðum fyrir heimilið. Blað fyrir fagurkera og alla þá sem vilja hafa fallegt og notalegt heima hjá sér.

Ritstjóri Húsa og híbýla er Sigríður Elín Ásmundsdóttir.
Auglýsingastjóri:
Atli Bergmann
sími: 515 5614 / 897 9144
Netfang: atli(hja)birtingur.is
Verð:
Heilsíða: 199.224 kr.
Hálfsíða: 119.559 kr.
Fjórðungssíða: 73.805 kr.
Opna: 302.825 kr.
Baksíða: 296.841 kr.

Ath! Æskilegt er að auglýsingum sé skilað á .pdf formi með 3 mm blæðingu og í minnst 300 punkta upplausn.

