Fyrirtækið
Birtíngur útgáfufélag
Birtíngur er stærsti útgefandi tímarita á Íslandi.
Markmið Birtíngs er að bjóða upp á ánægjulega skemmtun og afþreyingu fyrir alla fjölskylduna með útgáfu vandaðra tímarita þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi.
Tímaritin eru öll í fremstu röð og hafa notið mikilla vinsælda íslenskra lesenda í áraraðir. Þar má nefna að Vikan hefur komið út í yfir 70 ár. Gestgjafinn og Nýtt líf hafa komið út í yfir 30 ár og Mannlíf í aldarfjórðung. Eru áskrifendur tímarita okkar stór hluti landsmanna.
Birtíngur er í eigu tveggja eignarhaldsfélaga, Hjálms ehf. (64%) og Austursels ehf. (36%). 365 hf. eignaðist 47% hlut í Hjálmi á sl. ári en Austursel á 53%. Hreinn Loftsson hrl. er eini eigandi Austursels og dótturfélags þess SMD ehf., sem er skráð fyrir hlutnum í Birtíngi útgáfufélagi.

