Beint í leiðarkerfi vefsins.
Útskriftin, Brúðkaupið, Fermingin, Páskarnir, yfir 130 uppskriftir og hugmyndir í veisluna! Við tökum
fyrir veislur af ýmsum gerðum, hvort sem tilefnið er stórt eða smátt og komum með fjölda hugmynda að veisluföngum, skreytingum og undirbúningi. Við kíktum í óvenjulega og spennandi brúðkaupsveislu í Gróttu. Þá sýnum við einnig hvernig gera má 3 máltíðir úr einu lambalæri, páskamaturinn fær sinn sess og föstu þættirnir eru á veislunótum. Lesa meira
Eva Margrét Einarsdóttir var keðjureykjandi fitubolla, að eigin sögn, en sneri við blaðinu. Hún ólst upp á óregluheimili, var of feit, reykti og drakk of mikið og var í slæmum samböndum við karlmenn. Ofan á allt saman veiktist hún og hefur þrisvar sinnum misst fóstur; 37 ára gömul er hún samt lífsglaður orkubolti sem hleypur maraþon á fjöllum og kennir fólki að tileinka sér jávætt hugarfar.
Lesa meira
Eldhúsblaðið er fastur punktur í tilveru Húsa og híbýla. Úrvalið er einkar glæsilegt í ár. Við tókum meðal annars hús á matarsérfræðingum, kokkabókahöfundi og fagurkerum, renndum til Selfoss að skoða eldhús, tókum saman góð ráð og ábendingar og renndum í búðir til að leggja á fjögur borð, full af innblæstri.
Lesa meira
Catalina Mikue Ncogo komst í fréttirnar nýverið þegar hún var hneppt í sjö daga gæsluvarðhald grunuð um að hafa gert út vændiskonur hér á landi og hagnast á því. Einnig var hún grunuð um aðild að fíkniefnainnflutningi sem íslenskur kærasti hennar var handtekinn fyrir í Amsterdam á dögunum.
Lesa meira
Þetta er ekki ég, segir Auðunn Blöndal um klámmyndina / Elskugi Íslands grætur í Beverly Hills / Jón Trausti Lúthersson og Svala Kolbrún eru ástfangin / Jojo syngur á sundskýlunni / Stjörnulögfræðingurinn Sigurður safnar skeggi eins og langafi / Bólstrarahjónin Egill og Sigríður eru stolt af syninum í CSI!
Lesa meira
Sneisafullt tölublað um allt sem tengist fermingum og barnaafmælum .Við skoðum hugmyndir, ráð, afmæliskökuna og ævintýralegar skreytingar. Þá eru pottréttir, salöt, veislutertur, skreytingar fyrir fermingarveisluna og þrep fyrir þrep að frábærri kransaköku. Ásamt þessu öllu skoðum við uppáhaldsrétti barnanna, hinn fullkomna grjónagraut og margt fleira.
Lesa meira