Útgáfa

ml0902

28.5.2009 : Forsetanum hótað!

Glæpasmásögubókin 13 krimmar fylgir Mannlífi að þessu sinni. Sneisafullt blað af áhugaverðu og skemmtilegu efni. "Þetta er viss sjúkdómur ..." segir Ólafur Ragnar Grímsson forseti, sem rekur hrunið að hluta til flokksræðis. Forystumenn flokkanna beittu "drottnunarvaldi" sínu til að skipa dygga flokksmenn " miskunnarlaust" í stöður á kostnað hinna hæfari.

Lesa meira
 
ge0907

28.5.2009 : Ferðast um Ísland

30 frábærar nestishugmyndir finnur þú í skemmtilegu og sumarlegu tölublað er komið í verslanir! Góðar hugmyndir að sumarlegum og matarmiklum salötum, grillkolakönnun og upprennandi kokkar í Hólabrekkuskóla eru meðal efnis. Þá eru heimsins bestu samlokur og gómsætar súpur.

Lesa meira
 
vi0921

28.5.2009 : Lífið er draumur

Guðrún Hjörleifsdóttir spámiðill hefur alla tíð vitað af öðrum heimi handan við móðuna miklu. Hún veit hvað framtíðin hefur að geyma en lifir þó lífsglöð í núinu og nýtur jarðvistarinnar til fullnustu. Hún gefur lesendum Vikunnar innsýn í bernskuna, líf miðilsins og framtíðarsýn um Ísland.

Lesa meira
 
sh0921

28.5.2009 : Burt með bumbuna!

Hugleikur hugfanginn af Ágústu Heru // Útvarpsstjarnan Sigga Lund létt í lund - burt með bumbuna og sértrúarsöfnuðinn // Heilsukóngurinn Örn Svavarsson var óheppinn og keypti vanskapaða lund í Kína // Sarah Jessica Parker og Matthew Broderick keyptu íslensk málverk // Bergljót Arnalds og Páll Ásgeir áttu ævintýrabrúðkaup á Búðum // Hannes, Björgólfur, Pálmi og Finnur: Vitrtingar á villigötum! Lesa meira
 
hh0907

20.5.2009 : Stóra sumarhúsablaðið!

Á árlegum sumarhúsarúnti Húsa og híbýla fórum við um víðan völl. Meðal annars kíktum við á tvo gullfallega bústaði á Arnarstapa á Snæfellsnesi, sumarhöll í íslenskum stíl í Grímsnesi og nútímalegt sumarhús á Þingvöllum. Fyrir þá sem eiga ekki kost á því að fara í sumarhús í sumar litum við einnig á nýtt og fallegt gistiheimili í Stykkishólmi Lesa meira
 
nl0905b

20.5.2009 : Sirrý í einkaviðtali, 50 baðföt og margt fleira!

Sirrý segir að kynæsandi undirföt eru mikilvæg og tangó viðheldur neistanum í ástalífinu. Eftir 19 ára hjónaband er hún enn bálskotin í manninum sínum og segir að það sé einhver efnafræði, hún sé bara sjúk í hann, húðina á honum. Sirrý er síkát og brosandi en undir yfirborðinu býr manneskja sem þurfti að takast á við drykkjuvandamál og óöryggi í æsku Lesa meira
 
vi0920

20.5.2009 : Fólk eins og ég eignast óvini

Jónína Benediktsdóttir hefur verið áberandi frumkvöðull í heilsugeiranum í áratugi. Hún lítur afskaplega vel út og segir líðan sína aldrei hafa verið eins góða og eftir að hún hóf að detoxa. Hún opnar nú glæsilegt detoxhótel í Reykjanesbæ og ætlar að bjóða fimm lesendum Vikunnar í meðferð hjá sér sem kostar milljón krónur, hver meðferð 200 þúsund Lesa meira
 
sh0920

20.5.2009 : Eiga báðir von á barni!

Ásdís Rán kíkti til Íslands og var djörf og djúsí á hótelsvítu // Þokkagyðjan Ragnheiður Guðfinna og Tryggvi Þór eignuðust strák // Ævintýri Sóleyjar Ingólfs - flugfreyja í einkaþotu // Idol-stjarnan Hrafna og öskubuskuævintýrið úr Berufirði // Tónlistardívan Védís Hervör er fórnarlamb tölvuþjófa // Simmi og Jói eiga báðir von á barni

Lesa meira
 
so0906

14.5.2009 : Rannsóknarrétturinn

Sagan Öll skoðar alla mannkynssöguna, frá fornöld til okkar daga, og Íslandssagan er skoðuð í nýju ljósi. Albúmið, staðreyndir, fróðleiksmolar, getraun og fleira skemmtilegt eru fastir þættir í blaðinu. Lesa meira
 
st0906

14.5.2009 : Skrímslið á drekasvæðinu

SKAKKI TURNINN er tímarit um allt! Í blaðinu geta verið greinar um forsöguleg dýr, tímaferðalög, geimverur mánaðarins, tilfinningalíf músa eða guð. Svörtu síðurnar er mjög vinsælt efni og svo eru smá heilabrot. (á svörtu síðunum er farið yfir “verstu” moment mannkynssögunnar, þar sem mannlegt eðli hefur risið lægst, morð, píningar, slys, og fleira í þeim dúr) Lesa meira
 
vi0919

14.5.2009 : Þurfti að flýja með dæturnar

Elsa Dóróthea Daníelsdóttir elti ástina alla leið til Jerúsalem þar sem hún horfði upp á Qussay, heitmann sinn, og fjölskyldu hans beitt miklum órétti vegna palestínsks uppruna þeirra. Elsa flúði til Íslands með dætur sínar tvær þegar ástandið á Gasa-svæðinu hafði haldið henni innilokaðri á heimili sínu í þrjá mánuði og óöryggið var farið að taka sinn toll af sálarlífinu Lesa meira
 
sh0919

14.5.2009 : Keyptu glæsivillu í kreppunni!

Stjörnuhjónin Inga Lind og Árni Hauksson keyptu glæsivillu í kreppunni // Bankadólgurinn Sigurður Einarsson neitar að skila Fálkaorðunni // Sættir í tölvupóstmáli Jónínu Ben og Sigríðar Daggar // Spákonan Sigríður Klingenberg keypti spegil til að grennast // Urður í GusGus og Ásta í Eskimo dýrka Ásdísi Rán // Hanni í Skímó er skilinn við konuna Lesa meira
 
GE0906

7.5.2009 : Grillblaðið er komið!

Grilltíminn er nú runninn upp með stútfullu Gestgjafablaði af hugmyndum. Edda Heiðrún Backman listakona og -kokkur bauð til glæsilegrar veislu og við fengum að fylgjast með henni og lesendur fá að sjá hvað hún bauð nokkrum leikkonum og sælkerum upp á. Við sýnum í máli og myndum hvernig heitreyking á grilli fer fram, grillum alls konar fisk sem hefur legið í mismunandi kryddlegi, gefum uppskriftir að meðlæti, sósum, ávaxtasalötum, brauði sem bakað er á grilli og að stórsteikum

Lesa meira
 
vi0918

7.5.2009 : Fallið hátt í hruninu

Venjuleg fjölskylda í óvenjulegum aðstæðum. Kristín Bjarnadóttir býr í fallegu húsi í Kópavogi, ásamt eiginmanni sínum, Árna Björgvini Halldórssyni, og fjórum börnum þeirra. Líf þeirra umturnaðist í kjölfar efnahagskreppunnar.

Lesa meira
 
sh0918

7.5.2009 : Kveður sjónvarpið!

Sár bróðurmissir Einars Arnar Reynissonar - Nýr Gísli Þór ::: Matti, Lísa, Anna Hlín og Hrafna - Idol í London ::: Valdís Ýr, Ungfrú Vesturland, temur folana ::: Sigurjón Sighvats í Danmörku og stóð af sér hrunið ::: Dýrustu skilnaðirnir ::: Svanhildur Hólm vill flytja út á land og kveður sjónvarpið! Lesa meira
 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.