Útgáfa

ju0901

28.9.2009 : JÚLÍA

Alls kyns skemmtilegt efni er að finna í Júlíu og má þar nefna viðtal við Kristin Stewart sem ætlaði fyrst ekki að taka hlutverki Bellu í Twilight. Zac Effron, sem sló í gegn í High School Musical, segir meðal annars frá því þegar hann missti niður um sig buxurnar fyrir framan bekkinn! Júlía býður líka upp á stjörnuspá, gallabuxnaráð, förðunarboðorðin 10, stjörnumola, ráðleggingar um hvernig þú getur útbúið þitt eigið spa, skemmtilegar greinar, próf Lesa meira
 
hh0913

28.9.2009 : Græna blaðið

Græna blað H&H er komið í verslanir. Að þessu sinni er m.a. kíkt í heimsókn til Kolbrúnar Björnsdóttur grasalæknis og Ástu Arnardóttur jógakennara en hún er tilnefnd til Náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs. Þá bendum við einnig á skemmtilegar grænar bækur og vefsíður sem enginn má láta framhjá sér fara.
Lesa meira
 
vi0938

28.9.2009 : Sálarmorð

Jósef Gunnarsson er 28 ára gamall en hefur átt erfiðara líf en flestir jafnaldrar hans. Hann hefur lengi barist við þunglyndi og vill segja sögu sína í þeirri von að það verði skref í átt til bata og geti jafnvel hjálpað öðrum. Jósef stefnir ótrauður áfram og ætlar sér út úr martröðinni.

Lesa meira
 
sh0939

28.9.2009 : Byrjuð með trommaranum í Buff!

Söngdívan Guðrún Gunnars er skilin við Valgeir Skagfjörð og byrjuð með trommaranum í Buff // Atli Steinn á Bylgjunni er stripparinn sem varð fréttamaður // Strákastelpan Vala Grand er komin með brjóst // Raggi Bjarna elskar hrökkbrauð með sultu //Seðlabankahjónin Már Guðmundsson og Elsa Þorkels keyptu höll á Hávallagötu // Þokkadísin Ósk Norðfjörð um skilnaðinn í Krossinum Lesa meira
 
nl0909

18.9.2009 : Fann fyrir létti þegar hann lést

Í nýjasta tölublaði af Nýju Líf finnur þú allt það sem þú þarft að vita um hausttískuna, þú getur lesið um og lært helstu trendin í förðun og hvernig þú öðlast hreint og heilbrigt hár. Við mælum með að þú takir eftir fegurð hversdagsleikans og lærir að lifa í núinu. Auk þess er viðtal við Elvu Ósk leikkonu sem missti manninn sinn og báða foreldra sína á aðeins átta árum

Lesa meira
 
st0911

18.9.2009 : Til mars ... aðra leið!

Hver eru allra ljótustu dýrin í heiminum? Hvar er heimsins minnsti skýjakljúfur? Á hvaða veitingahúsi borða menn á klósettinu? Hvaða varaforseti varð skóburstari? Þú finnur svörin við þessum spurningum og svo miklu, miklu meira í nýjasta tölublaði af Skakka Turninum Lesa meira
 
so0911

18.9.2009 : Samúræjar

Í nýjasta tölublaði af Sögunni Allri kennir ýmissa grasa. Fjallað er um Rómverskan byltingarmann, Coco Chanel, Róbinson Krúsó og orrustuna í Tevtóborgarskógi. Þá eru það Albert Einstein, úrvalshermenn Japans ásamt Humphrey Bogart sem við rannsökum líka. Lesa meira
 
vi0937

18.9.2009 : Líf í nýju ljósi

Steinunn Björk Jónatansdóttir er 32 ára glaðvær kona sem nýtur lífsins fram í fingurgóma. Hún týndi sjálfri sér í kjölfar þess að upplifa snjóflóðið í Súðavík á sínum tíma, þurfti að glíma við erfiðleika tengda barneignum og eyddi ótal árum í að hafa áhyggjur af þyngdinni. Loks varð kúvending á hugsunarhættinum og í dag kveðst hún hamingjusöm og ánægð með lífið og tilveruna

Lesa meira
 
sh0938

18.9.2009 : Barnasprenging stjarnanna!

Geir H. Haarde snýr aftur eftir fullan bata ::: Leiðarvísir stefnumótanna ::: Birgir, sonur Stebba Hilmars, er 17 ára sjarmör ::: Kolfinna Baldvins kolféll fyrir Spánverja og elskar Jesus ::: Steinþóra Þorsteins er atvinnulaus og hamingjusöm ::: Bjarki Gunnlaugs seldi einbýlishúsið og stækkar við sig í kreppunni ::: Barnasprenging stjarnanna!

Lesa meira
 
ge0912

14.9.2009 : 60+ einfaldar og flottar uppskriftir

Nú er uppskeran í hámarki og þeir sem voru forsjálir nýttu sumarið til að láta jörðina fóstra fræ og útsæði og skila svo dásamlegum verðmætum til að nýta í dýrindis rétti. Þetta nýttum við okkur hér á Gestgjafanum, settum saman uppskriftir og sjá má afraksturinn hér á síðunum. Í hillum verslana má núna fá allt þetta ferska hráefni og um að gera að nota það á meðan hægt er Lesa meira
 
vi0936

14.9.2009 : Danski kúrinn!

Kjörþyngd er hugarástand Fyrir tveimur árum birtist viðtal í Vikunni við Hörpu Kristjánsdóttur sem sat fyrir nakin á forsíðunni, þá vel yfir 100 kíló að þyngd. Með þessu gaf hún útlitskúgun langt nef. Hún var hamingjusöm þá og er jafnhamingjusöm núna en líður miklu betur. Fyrir ári hætti hún að neyta sykurs, kornvöru og rjóma og andlega líðanin gjörbreyttist. „Aukaverkunin“ varð sú að hún missti 45 kíló. Lesa meira
 
sh0937

14.9.2009 : Ég skammaði hann ekkert!

Dr. Mister Ívar Örn keypti pylsu fyrir ránsfenginn // Fræga fólkið tekur kindur í fóstur! Hermann Hreiðars á Hermínu Lóu // Davíð, litli bróðir Geira á Goldfinger, kvæntst pólskri // Fótboltagoðið Arnar Gunnlaugsson skotinn í Skagamær // Þokkadísin Kittý Johansen og Ágúst Reynir, ófrísk við altarið // Elín Sveinsdóttir, eiginkona Sigmundar Ernis, um rauðvínsævintýrið: Ég skammaði hann ekkert! Lesa meira
 

4.9.2009 : JÚLÍA

Fyrsta tölublað Júlíu kemur út þann 24. september. Júlía er tímarit fyrir hressar, kátar og snjallar unglingsstelpur. Til að nefna nokkur dæmi um efni þá verða fjölbreytt viðtöl, t.d. verða í fyrsta tölublaðinu viðtöl við Zac Efron og Kristin Stewart, ásamt grein um Twilight. Þá verður í tímaritinu tískuþáttur Haffa Haff og góð tískuráð frá stjörnunum. Einnig geta lesendur tekið skemmtileg sjálfspróf, sent inn lesendabréf eða sniðugar smásögur, sögur um vandræðalegustu atvikin eða óskað eftir pennavinum Lesa meira
 
hh0912

3.9.2009 : NÝ TÆKIFÆRI

„Kreppa er bara annað orð yfir ný tækifæri,“ sagði Jón Páll Vilhelmsson ljósmyndari þegar við heimsóttum hann í gallerí hans á Laugavegi. Galleríið opnaði hann í húsnæði sem hafði staðið tómt í marga mánuði áður en hann flutti inn. Þetta hugarfar var til staðar hjá mörgum sem við heimsóttum við gerð þessa tölublaðs Húsa og híbýla. Á Laugalæk opnuðu hjónin Rakel og Halldór bændamarkaðinn Frú Laugu Lesa meira
 
vi0935

3.9.2009 : Enginn fékk að sjá líkama minn!

Anja Ísabella Lövenholdt er baráttukona sem vill tabúið burt! Hún greindist með húðsjúkdóminn psoriasis um tvítugt og upplifði það sem mikið feimnismál. Hún huldi líkama sinn og segist líklega aldrei losna alveg við spéhræðsluna. Verst er þó gigtin sem fylgir gjarnan psoriasis-sjúkdómnum. Ísabella segir neikvæða umræðu ríkjandi um hann og því vill þessi unga, glæsilega kona breyta Lesa meira
 
sh0936

3.9.2009 : Búin að missa 40 kíló!

Monitor-grínarinn Steindi Jr. slær rækilega í gegn ::: Silfurstjarnan Sigfús Sigurðsson fríkar út ::: Svanhildur Hólm og Logi Bergmann eiga von á barni ::: Björn Jörundur ber að ofan að safna fyrir fiskabúri ::: Stórstjörnurnar Ásdís Rán og Cuba Gooding Jr voru þokkafull í þotupartíi :::

Lesa meira
 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.