Útgáfa

vi0947

26.11.2009 : KÖKUBLAÐIÐ

Kökublað Vikunnar er komið út með yfir 90 uppskriftum! 3 flottar jólaveislur og áhrif fyrstu ástarinnar kemur líka til sögu. Þá eru bráðfyndnar fjölskyldumyndir skoðaðar og rætt við Þóru Arnórsdóttur sem er nægjusöm sjónvarpsstjarna. Kökublaðið er extraþykkt og troðfullt af girnilegum kökum. Lesa meira
 
hh0916

26.11.2009 : Jólablaðið

Jólablað Húsa og híbýla er komið í verslanir! Föndrað fyrir jólin, jólamarkaðir um allt land og 80 jólagjafahugmyndir eru meðal efnis í þessu blaði. Innlit hjá Katri R. Tauriainen stílista sem segir íslensk jól hátíðlegri og hjá Ástu Sigurðardóttur hönnuði sem er með logandi kerti á jólatrénu.

Lesa meira
 
ml0904

26.11.2009 : Ég er þræll

Magnað Mannlíf er komið út. Tímaritið er sneisafullt af fróðleika, viðtölum og ýmsu fleira. Þar má nefna viðtal við Bubba sem stendur á bómullarakri bankanna og vill byltingu, og ljósmyndaþáttinn Nakin List. Við tökum stöðuna hjá venjulegum manni í kreppunni, hann þurfti að stela og svelta. Björn Þorláksson skrifar um heimkomuna og velt er upp spurningunni hvernig Ísland verður spilltasta land í heimi. Lesa meira
 
sh0948

26.11.2009 : Hommum bannað að syngja í Fíladelfíu

Súpersöngvarinn Friðrik Ómar ósáttur eftir að hommum var bannað að syngja í Fíladelfíu ::: Unnur Birna stendur í stórræðum og hafnaði BBC ::: Sjónvarpsstjarnan Sölvi er aðalspaðinn á Facebook ::: Pólitíkusinn Sigurður Kári var kærasti Ingu Lindar ::: Grínarinn Gísli Rúnar er á kafi í kvennamálum í Ameríku ::: Bjarney Bjarnadóttir á æstan aðdáanda og fékk 23 skópör í pósti Lesa meira
 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.