Útgáfa

ju1005

20.5.2010 : Hollywood

Viðtöl við Logan og Daniel // Allt um Lísu í Undralandi // Þema: Hollywood // Heitustu kvikmyndir heimsins // Hvaða týpa af kvikmyndastjörnu ert þú? // Ert þú í Hollywood kvikmynd? // Stjörnurnar á rauða dreglinum // Plaköt // Tískuþáttur Haffa Haff // Gossip Girl-partí // Hugmyndabankinn // Viðtal við Anne Hathaway // Allt um Ke$ha

Lesa meira

 
vi1020

20.5.2010 : Íslenskar stelpur erfiðar

Guðrún G. Sveinbjörnsdóttir fer sínar eigin leiðir. Hún upplifði fordóma gagnvart því að kynnast manni sínum á MySpace og þeirri staðreynd að hann er frá Ísrael en hún blæs á illt umtal og vill að fólk læri umburðarlyndi. Í einlægu viðtali tjáir hún sig m.a. um erfiðan skilnað, kjaftasögur, miðilsgáfu, austurlenska karlmenn, ást og hatur og þegar hún var rekin frá Svíþjóð fyrir að vera talin djöfladýrkandi Lesa meira
 
sh1020

20.5.2010 : Elskar Esjuna og eiginmanninn

Sjónvarpsgyðjan Friðrika Hjördís blæs á kjaftasögurnar: ELSKAR ESJUNA OG EIGINMANNINN! // Bryndís Jónsdóttir í stríð við Ásdísi Rán: LÆT EKKI VAÐA YFIR MIG ENDALAUST! // Ellý Ármanns fertug: MAMMA KOM FRÁ LÚX! // Hilmir Hjálmars er sjóðheitur: FRÍKAÐ FJÖR Á FJÖLNISVEGI! // Latabæjarkóngurinn Magnús Scheving: SVALASTUR Á LISTAHÁTÍÐ! // Hárgreiðslumeistarinn Íris Sveins: SEXTÁN GREIÐSLUR Á EINU KVÖLDI! Lesa meira
 
go1003

14.5.2010 : Aukablað um HM fylgir

Nýtt eintak af Goal er komið í verslanir og nú eru tvö blöð á verði eins! Í aðalblaðinu eru viðtöl við Iniesta sem er feimni snillingur Barcelona, Drogba sem hefur aldrei verið betri og Gylfa Þór sem nýlega var valinn leikmaður ársins. Aukablað fylgir með sem inniheldur allt sem þú þarft að vita um HM. Öllum löndunum eru gerð góð skil með greiningu á þeim, tölfræði og staðreyndum. Þá skoðum við vellina og dagskránna vel Lesa meira
 
vi1019

14.5.2010 : Háð súludansi

Fyrir tæpum tveimur árum fékk Dagný Ólöf Jónsdóttir, þá 23 ára, þær fréttir hjá lækni sínum að hún væri með MS-sjúkdóminn. Eftir fyrsta áfallið ákvað hún að láta veikindin ekki taka yfir líf sitt. Hún hélt áfram hjúkrunarnámi sínu og fór að auki að æfa súlufimi þar sem hún nældi sér í Íslandsmeistaratitil hálfu ári síðar Lesa meira
 
sh1019

14.5.2010 : Ásdís Rán stal röddinni minni

Bryndís Jónsdóttir söng Feel My Body: ÁSDÍS RÁN STAL RÖDDINNI MINNI! // Bomban springur! // Söngstjarnan Jóhanna Guðrún: HÆTT MEÐ KÆRASTANUM! //  Elva Ósk geislar af ást:Á KÆRASTA Í KEFLAVÍK! / Ingimar er æði! // Ingibjörg í Krossinum gefur út plötu:SYNGJANDI EFTIR SKILNAÐ! // Halla Vilhjálms og Erpur í útvarpinu: SJÓÐHEIT SAMAN! // Guðlaugur Þór og Ágústa Johnson: MEÐ TVÍBURANA Í GRILLVEISLU! Lesa meira
 
ml1001

7.5.2010 : Horfðist í augu við óttann

Guðjón Davíð Karlsson leikari, sem betur er þekktur undir gælunafninu Gói, var kallaður prestadjöfull í grunnskóla og fékk að heyra það bæði hjá kennurum og nemendum. Hann segir frá þessu og fleira í Mannlífsviðtalinu. Hann lét ekkert aftra sér frá því að verða leikari og fann sig óvænt í leikstjórn. Lesa meira
 
ge1006

7.5.2010 : Grillblaðið

Við gefum góð ráð í þessu tölublaði auk þess sem nýjar hugmyndir að góðum grillréttum eru á síðum blaðsins í löngum bunum. Við höfum alltaf í huga að uppskriftirnar séu einfaldar og auðveldar af því að lesendur eru mjög duglegir að láta okkur vita af óskum um slíkt Lesa meira
 
hh1005

7.5.2010 : Hin fagra Akureyri

Maíblað Húsa og híbýla er komið út. Þar er hinni fögru Akureyri gerð góð skil, má þar til dæmis nefna stórskemmtilegt innlit til Þorbjargar sem er Frúin í Hamborg á Akureyri og  rómantískt innlit til Bryndísar og Marcos. Við kíktum líka á  Safnasafnið og mynduðum falleg hús í bænum. Þá fylla falleg innlit 36 síður í blaðinu, auk þess er þáttur sem við köllum Skref fyrir skref Lesa meira
 
sigga

7.5.2010 : Hús og híbýli - nýr ritstjóri

Nýr ritstjóri hefur tekið við tímaritinu Húsum og híbýlum, Sigríður Elín Ásmundsdóttir, sem hefur verið blaðamaður og aðstoðarritstjóri á tímaritinu síðan í ágúst 2006. Hús og híbýli er rótgróið tímarit á íslenskum tímaritamarkaði og hefur komið út í rúmlega 30 ár Lesa meira
 
sh1018

7.5.2010 : Þarf ekki bensín!

Útvarpsstjarnan Gulli Helga á bíl eins og Jack Bauer á: ÞARF EKKI BENSÍN! // Þokkadísin Unnur Steinsson: RÍÐUR RAUÐHETTU! // Björn Karlsson í logandi stuði:BRUNAMÁLASTJÓRI EIGNAST BARN! // Stíldívan Þórunn Högna: DEITAÐI DAVID GUETTA! // Stjörnuparið Dóra og Jörundur: VON Á BARNI! // Tinna Rut í Hafnarfirði:SÆTASTI VÖRUBÍLSTJÓRINN! // Fyrirsætan Lilja Ingibjargar: HÆTT AÐ DREKKA OG KOMIN Á LYF! Lesa meira
 
vi1018

7.5.2010 : Sneri baki við götunni

Sigurrós Yrja Indriðadóttir leiddist ung út í óreglu og lærði að vera götustelpa en árum saman átti hún engan samastað. Fyrir þremur árum sneri hún við blaðinu og er ánægð með að hafa endurheimt tengslin við fjölskyldu sína. Þrátt fyrir ýmsa erfiðleika hefur hún ekki fallið og er þakklát fyrir lífið Lesa meira
 
vi1016

7.5.2010 : Orðin þreytt á þögninni

Margrét María Jóhannsdóttir er fjögurra barna móðir sem staðið hefur í erfiðri forsjárdeilu frá árinu 2002. Mikla athygli vakti þegar hún var nýlega handtekin í Kringlunni og gert að koma tafarlaust með lögreglu án þess að fá að láta börnin sín vita. Eftir erfið ár segir Margrét að hún standi enn þá upprétt en sé komin með nóg af þögninni Lesa meira
 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.