Gestgjafinn

ge0705gb

Grillblað Gestgjafans

Stútfullt af hugmyndum

Grillblað Gestgjafans er komið út stútfullt af hugmyndum fyrir komandi grilltíð. Meðal efnis í blaðinu er litrík matarveisla sem ljósmyndarinn og matgæðingurinn Áslaug Snorradóttir hélt við höfnina í Reykjavík þar sem m.a. var boðið upp á grillaðan saltfisk.

Lambi, nauti, svíni og kjúklingi á grillið eru gerð ýtarleg skil með fjölda uppskrifta.

Fiskur á grillið skipar stóran sess í blaðinu hjá okkur að þessu sinni enda er sífellt verið að minna okkur á hollustu fisks og að neyta hans oftar í viku.

Smokkfiskur, skelfiskur, lúða, skötuselur, steinbítur ... allir góðir á grillið!

Nýstárlegt meðlæti, sætmeti, sósur, kryddsmjör, bakað á grilli, grillráð, maríneringar fyrir grillsteikina og margt, margt fleira er að finna í nýjasta tbl. Gestgjafans.

MEÐLÆTI – SÓSUR – KRYDDSMJÖR – MARÍNERINGAR – SÆTT Á GRILLIÐ – BAKAÐ Á GRILLI (PÍTSA Á GRILLIÐ) – ELDAÐ Í ÁLPAPPÍR – VÍNIÐ MEÐ GRILLMATNUM – FISKUR – NAUT – SVÍN – LAMB – KJÚKLINGUR ALLT ÞETTA OG MEIRA TIL FINNUR ÞÚ Í GRILLBLAÐI GESTGJAFANS!



 

eplice - System error
 
Error has occured, press the back button on your browser.
Please try again later
 error description :



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefforitunvefforitun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.