Gestgjafinn
Kökublað Gestgjafans
Kökublað Gestgjafans hefur um árabil verið eitt vinsælasta tölublað ársins, ef ekki það vinsælasta. Nýútkomið kökublað ærir lesendur með uppskriftum og myndum á heimsmælikvarða. Hver einasta er meistaraverk í sjálfri sér.
Að þessu sinni er hefðbundinn þáttur með uppáhaldskökum nokkurra sælkera, svakalegur súkkulaðiþáttur, ostakökuþáttur skúffukökuþáttur, smákökuþáttur auk þess sem kenndar eru aðferðir við að búa til aðventukransa úr hráefni úr eldhúsinu.
Konfektgerðin er líka hefðbundinn þáttur í jólahaldi margra og við kíkjum nokkrar ljúffengar gerðir.

