Gestgjafinn
Afmælisblað Gestgjafans!
Afmælishugmyndir í löngum bunum, bæði að veitingum og skreytingum í afmæli fyrir fólk á öllum aldri. Morgunverðarafmæli, smáréttaafmæli, kaffiafmæli með kökum og barnaafmæli. Látið ykkur dreyma og þið finnið svörin í 11. tbl. Gestgjafans.
Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag ... - Rósa leyfði okkur að fylgjast með líflegu og skemmtilegu barnaafmæli þar sem veitingarnar voru af ýmsum gerðum.
Afmæliskakan - Sirrý gefur hér hugmyndir að afmæliskökum sem eiga það allar sameiginlegt að vera stórar, drjúgar og hrikalega góðar!
Afmælisborðið skreytt - Hvernig er hægt að skreyta afmælisborðið án mikils kostnaðar og fyrirhafnar? Gerður sýnir okkur það.
Morgunverður á afmælisdaginn - Það getur verið góð hugmynd að halda afmælisveisluna að morgni. Sirrý kom með hugmyndir að einni slíkri veislu.
Villtir sveppir - Nú stendur sveppatíminn sem hæst en hann stendur að jafnaði frá miðjum júlí og fram að fyrstu frostum. Úlli fór í sveppatínslu og eldaði gómsæta rétti úr sveppunum þegar heim var komið.
Sveitamarkaður í Mosfellsdal - Hólmfríður brá sér á markaðinn í Mosfellsdal en þar fæst m.a. nýupptekið grænmeti, afskorin blóm, nýr silungur úr Þingvallavatni og sultur og sósur frá heimamönnum.
Ber, ber, ber út um allt ... - Smáréttaveisla - Þemaveislur – Grænmetisrétturinn - Hugmyndir og ráð fyrir afmælisveislur
Búðaráp - Spurt og svarað – Torgið - Í uppáhaldi – Gómsætt án sykurs - Eitt vín – einn réttur - Allra handa - Sunnudagskakan - Molar/bix - Vínsíðurnar - Veitingahúsarýni - Áskrifendatilboð og happdrætti

