Goal
GOAL!
Þriðja tölublað af GOAL er komið út! Goal metur heimsins efnilegustu fótboltaspilarana, tökum stöðuna á Fernando Torres og veltum fyrir okkur hvort hann sé flipp eða flopp. Þá er viðtal við Edin Dzeko í blaðinu ássamt því að við skoðum ruglaðasta lið Englands, Newcastle. Hafið þið tekið eftir leyndum skilaboðum stjarnanna? Við höfum gert það og birtum í blaðinu nokkur af þeim skemmtilegustu. Njósnarinn tékkar á Alexander Merkel og við gerum úttekt á goðsögninni Zidane.
Úrvalsdeildin, La liga og Sería a eru að sjálfsögðu á sínum stað ásamt boltabrotunum, heimsboltanum og öllu hinu!
Gleðilegt boltasumar!

