Hús og Híbýli

hh0705

Nútímaheimilið

Hús og híbýli er troðfullt af áhugaverðu efni og sniðugum lausnum. Að þessu sinni beinir blaðið sjónum sínum sérstaklega að nútímaheimilinu.

Borgarbúar í sveitasælu - Leifur G. Welding, framkvæmdastjóri Saltfélagsins, og Kristín Björk Þorvaldsdóttir flugfreyja búa í glæsilegu húsi sem er hannað af Manfreð Vilhjálmssyni á Hvanneyri. Þau segja frábært að búa á Hvanneyri, bæði fyrir börn og fullorðna.

Partídót, kampavín og kokteilpinnar - Má bjóða þér kokteil, væna? Kokteilsumarið er senn að byrja og tími tilkominn að setja á sig varalit og taka fram háu hælana og kokteilhristarann.

Hús á fjórum pöllum - Hjónin Hulda Hrönn og Aðalsteinn Finsen eiga skemmtilega hannað hús í Garðabæ sem Björn Hallsson arkitekt á heiðurinn af. Hús og híbýli kíktu þangað í kaffi með kameruna og diktafóninn.

Elsa María Blöndal - Ofurgellan Elsa María Blöndal á marga skemmtilega hluti. Hún sýndi okkur spegil frá Spáni, bol eftir Vivian Westwood og Jón Sæmund, fataskápinn sinn og fleira.

Litríkt vor - Loksins, loksins er vorið að koma með betri tíð, glampandi sól alla daga og fullt af fallegum blómum í haga. Við skelltum okkur út í móa með litríkt og hressandi dót sem fer létt með að lífga upp á hvaða heimili sem er.

Hauskúpan hennar ömmu - Listakonan Borghildur Anna Jónsdóttir bjó til afar sérstakan lampa úr röntgenmynd af hauskúpunni sinni.

Áttunda undur veraldar - Uppbyggingin sem á sér stað í Sameinuðu arabísku furstadæmunum þessi árin er lygileg. Frægustu arkitektum heimsins er flogið þangað í hrönnum og hvað sem er byggt, það á alltaf að vera það stærsta í heimi.

Himnesk altari - Í kirkjum landsins leynast mörg ægifögur listaverk sem öll hafa sína himnesku sögu að segja; nefnilega altaristöflurnar. Oft hefur gríðarmikil vinna verið lögð í þessi listaverk.

Vorhugmyndir, stofur, svefnherbergi, stólameistari Íslands, Alda design og margt fleira. Þá eru föstu þættirnir auðvitað á sínum stað: Spurt og svarað * Allt fyrir gæludýrin * Nýjar búðir * Áskrifendatilboð * Smekkfólkið * Uppáhaldshúsið.



 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefhönnunvefhönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.