Hús og Híbýli

hh0706

Sumarhúsablaðið langþráða er komið út!

Allan síðasta mánuð hefur ritstjórn Húsa og híbýla verið á faraldsfæti að skoða sumarhús landsmanna. Í sumarhúsablaðinu er meðal annars hægt að skyggnast inn í um fimmtán íslensk sumarhús sem eru staðsett víða um landið; á Þingvöllum, við Apavatn, í Hallormsstaðaskógi, í Grímsnesi, undir Eyjafjöllum og víðar.

Íslenskir hönnuðir
Á Kjarvalsstöðum fer fram stærsta sýning á íslenskri hönnun sem haldin hefur verið. Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir hönnuður valdi verkin á sýninguna sem skartar öllu því ferskasta og merkilegasta sem er að gerast í þessum blómstandi bransa.

Með hestana í garðinum
Hjónin Þóra Ólafsdóttir listförðunarfræðingur og Magnús Guðmundsson, sem gerði garðinn frægan í hljómsveitinni Þeyr, búa á einu flottasta bæjarstæðinu á Stór-Reykjavíkusvæðinu. Þeu eru á kafi í hestamennsku og með glæsilegt hesthús í bakgarðinum.

Húsgagnasýningin í Mílanó
Húsgagnasýningin í Mílanó var haldin í lok apríl. Sýningin er sú alstærsta á heimsvísu ár hvert og þar eru línurnar lagðar fyrir strauma og stefnur í húsgagnabransanum.



 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefhönnunvefhönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.