Hús og Híbýli
Frítt blóm fylgir með!
Nýtt tölublað Húsa og híbýla er komið út!
Hús og híbýli gefa öllum lesendum blaðsins glæsilega sumargjöf. Í blaðinu er að finna ávísun til að klippa út og framvísa í Blómavali. Fyrir hana fæst gullfalleg snædrífa, blóm sem verður vinsælla með hverju árinu og lifir fram á haust. Við kíktum í heimsókn í glæsilegt hús í Innri-Njarðvík, þar sem þau Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanessbæjar, og eiginkona hans Bryndís Guðmundsdóttir talmeinafræðingur búa. Þau byggðu húsið sjálf og skartar það meðal annars rosalegu útsýni út yfir hafið. Þá heimsóttum við nokkur af flottustu veiðihúsum landsins en þessa dagana bruna veiðimenn út um allt land með stangirnar á lofti og von í hjarta um að sá stóri taki á. Auk alls þessa eru fastir liðir á sínum stað í blaðinu, auk fróðleiks, fallegra heimila og margs fleira.

