Hús og Híbýli
Allt fyrir garðinn og pallinn finnur þú í nýju tölublaði Húsa og híbýla
Garðarnir eru í brennidepli hjá Húsum og híbýlum þennan mánuðinn enda eru þeir allir í blóma og aldrei eins gaman að vera utandyra og einmitt um þessar mundir. Við heimsóttum 12 íslenska glæsigarða út um borg og bý en þeim fjölgar stöðugt. Garðaeigendurnir verða sífellt útsjónarsamari auk þess sem úrvalið í búðunum eykst og útkoman er oft lygilega flott.
50 skotheld garðráð
Gengur illa að græja garðinn? Veður illgresið uppi? Vantar góðar hugmyndir og flottar lausnir? Hús og híbýli tók saman skemmtilegan lista með nokkrum ráðum sem gagnast jafnt klaufum sem þeim sem skarta grænum fingrum.
Ingibjörg og Jón Arnar í Habitat segja lesendum frá eftirlætum sínum á heimilinu, auk þess sem við tókum hús á Evu Þengilsdóttur viðskiptafræðingi og Martin Eyjólfssyni lögfræðingi.
Funheitur myndaþáttur
Sólardagarnir í Reykjavík gáfu okkur nokkrar góðar hugmyndir um hvernig skapa mætti persónulega ævintýraheima án þess að leggja land undir fót.
Glæsigarðar á Íslandi
Á hverju ári spretta upp flottir garðar víða um landið. Garðaeigendur verða sífellt útsjónasamari auk þess sem úrvalið í búðunum eykst og útkoman er oft lygilega flott.
Meistari garðanna
Það verður sífellt algengara að fólk leitar á náðir fagmanna þegar kemur að því að útfæra garða. Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hefur teiknað ófáa glæsigarða.
Keyptu húsið óséð
Fimm ár eru síðan Eva Þengilsdóttir viðskiptafræðingur og Martin Eyjólfsson lögfræðingur fluttust heim frá Brussel ásamt börnum sínum. Eva er einnig áhugamyndlistarkona og listaverkasafnari.
Nýtt útspil frá IKEA
Bæklingurinn sem IKEA sendi nýlega inn á þúsundir íslenskra heimila fór ekki fram hjá áhugamönnum um húsgögn. Í Stockholm-línunni er ætlun IKEA að stíga einu skrefi nær gæðavöru og halda verðinu niðri á sama tíma.
Brasilískir furðufuglar
Campana-bræður eru meðal nýjustu hönnunarstjarnanna. Þeir búa til húsgögn úr garðslöngum, reipum, vírum, mjúkum leikföngum, teppisbútum, límböndum og efnisbútum.
Hitt og þetta - Spurt og svarað - 10 hlutir - Góð hugmynd - Nýjar búðir – Áskrifendatilboð – Uppáhaldshúsið – Smekkfólkið.

