Hús og Híbýli
Heimilið tekið í gegn!
Hús og híbýli er komið út og að þessu sinni tökum við heimilið í gegn!
30 frábær framkvæmdaráð - Nú þegar sumrinu fer að ljúka og lífið að ná hefðbundnari takti gagntekur framkvæmdagleðin marga. Við tókum saman nokkur lauflétt ráð sem gætu komið sér vel.
15 heitustu gólfefnin - Gólfefnin í búðum bæjarins verða sífellt flottari og betri. Starfsmenn hinna ýmsu viðkomandi söluaðila hjálpuðu okkur að velja 15 heitustu gólfefni haustsins.
Þegar leggja á flísar - Bjarni R. Einarsson er flísameistari með áratugareynslu að baki. Hann var til í að gefa lesendum blaðsins nokkur góð ráð sem hafa þarf í huga þegar leggja á flísar.
Pólskir verkfræðingar á Íslandi - Hjónin Marta Slowinska og Przemek Czyzewski eru pólskir verkfræðingar sem vinna hér á landi. Þau leigja snotra íbúð í Mosfellsbæ og hafa gert þar stórsniðugar breytingar.
Chaplin og sixtís símaborð - Leikarinn og leikstjórinn Gunnar B. Guðmundsson frumsýnir sína fyrstu mynd, Astrópíu, síðar í mánuðinum. Á heimili hans er marga skemmtilega hluti að finna.
Heklar Dóruhúfur á kvöldin - Myndlistarkonan Halldóra Emilsdóttir, ævinlega kölluð Dóra Emils, hefur búið á sömu slóðum í Vesturbænum í mörg ár.
Arkitekt sem þekkist á stílnum - Arkitektinn Frank O. Gehry er umdeildur en meðal þekktustu bygginga hans er Guggenheim-safnið í Bilbao á Spáni.
Minnsta höll í heimi - Við geymdum eina fallega perlu í Flateyjarumfjölluninni í síðasta blaði ... litla dásamlega dúkkuhúsið Strýtu.
Hitt og þetta - Spurt og svarað - Ilmur fyrir haustið - Góð hugmynd - Nýjar búðir – Áskrifendatilboð - Smekkfólkið

