Hús og Híbýli
Nútímaheimilið
Hús og híbýli er komið út og að þessu sinni er það nútímaheimilið sem við kryfjum til mergjar. Þráðlausu græjurnar, hönnunarhúsgögnin og allt hitt sem er „nauðsynlegt“ inn á nútímaheimilið.
Hið tæknivædda nútímaheimili
Við Íslendingar erum kröfuharðir einstaklingar og viljum aðeins það besta inn á heimili okkar – enda teljum við okkur vera best í heimi. Hús og híbýli fór á stjá og kynnti sér þær tækninýjungar sem bjóðast nútímaheimilinu.
Lúxusíbúð í Skuggahverfinu
Margrét Kjartansdóttir hefur hreiðrað um sig í glænýju, níu hæða lúxushúsi við Lindargötuna með útsýni út á hafið.
Frumlegt og flott í stórborginni
Í hjarta Oslóar er glæsileg íbúð sem sameinar með einstökum hætti léttleika glers og hráleika steinsteypu og stáls.
Listamaðurinn Pétur Gautur
Listamaðurinn Pétur Gautur er án efa þekktastur fyrir olíumálverk sín af ávöxtum. Við heimsóttum Pétur Gaut; fyrst á vinnustofuna í sveitinni og nokkrum dögum síðar á Njálsgötuna þar sem hann er með aðra vinnustofu.
Flott íbúð við sjávarsíðuna
Tómas Jónasson, lögmaður og framkvæmdastjóri Leonard, á einstaklega fallega íbúð í Sjálandshverfinu í Garðabæ þar sem hugvit og hönnun fer saman.
Hitt og þetta – Spurt og svarað – Góð hugmynd – Veggfóðraði stofuskenkinn - Búðaráp – Blaðagrindur með stíl – Feitustu flatskjáirnir – Sniðugt – Sófi fær „extreme makeover“ –Krydd í eldhúsið – 10 hlutir – Aftur til náttúrunnar – Nýjar búðir – Áskrifendatilboð – Uppáhaldshúsið – Smekkfólkið

