Leifur
Leifur
Leifur - tímarit Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hóf göngu sína árið 2006. Leifur er frítt tímarit sem kemur út sex sinnum á ári. Því er dreift um Flugstöð Leifs Eiríkssonar og er mjög sýnilegt þar.
Góður ferðafélagi
Í blaðinu er fjallað um flest það sem viðkemur ferðalögum á skemmtilegan hátt. Einnig áfangastaði út um allan heim og vinsæla ferðamannastaði innanlands. Hápunktar menningarlífs Íslands hverju sinni eru skoðaðir og tekin viðtöl við áhugaverða aðila úr ýmsum áttum. Þá er farið yfir þjónustuna sem í boði er í Flugstöðinni og það sem stendur upp úr í vöruúrvalinu.
Á íslensku og ensku
Greinar í Leifi eru skrifaðar bæði á íslensku og ensku og glugga því flestir þeirra tugþúsunda íslenskra og erlendra ferðalanga sem eiga leið um flugstöðina í blaðið eða taka það til eignar.
Ritstjóri Leifs er Halldóra Anna Hagalín, halldora(hja)birtingur.is
Auglýsingastjóri:
Ásta Bjartmarz
astab(hja)birtingur.is
Sími: 699 4997


