Mannlíf

ml0706

Spegill samtímans

Mannlíf kemur nú út í betri og breyttri mynd. Tímaritið kemur út á þriggja vikna fresti og tekur púlsinn á málefnum líðandi stundar. Mannlíf er eina fréttatengda tímaritið á Íslandi.

Ø Nýju Íslendingarnir 

o   Vinnufúsir útlendingar kjósa í síauknum mæli að setjast að á Íslandi.

o   Vaxandi kynþáttavandamál á Norðurlöndum. Árekstrar ólíkra menningarheima og undir glansmynd opna fjölmenningarsamfélagsins leynast fordómar sem geta farið með þarfa umræðu um málefni innflytjenda á villigötur.

o   Útlendingar sem kjósa að búa og starfa á Íslandi telja fordóma fara vaxandi á landinu og telja Íslendinga mega vera opnari og brosa meira.

o   How do you like Iceland? Mannlíf ræddi við nýju Íslendingana og leitaði svara við spurningunum um það hvort rasismi væri á Íslandi og hvernig innflytjendunum líkaði á norðurslóðum.

Ø  Efnahagsuppgangurinn í Kína hefur verið gríðarlegur síðustu tvo áratugi og allt stefnir í að landið verði efnahagslegt stórveldi sem teygir anga sína út um allan heim og inn í hagkerfi Bandaríkjanna og fleiri landa.

Ø  Könnun á fylgi flokkanna - Ríkisstjórnin hangir á bláþræði.

Ø  Forsetinn í eldlínunni - Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, gæti orðið mikill örlagavaldur í pólitíkinni á næstu vikum fari svo að ríkisstjórnin missi meirihlutann í kosningunum.

Ø  Útvarp Vestfirðir, gott kvöld - Finnbogi Hermannsson er hættur hjá svæðisútvarpi Vestfjarða og talar hreint út um óráðsíu og stjórnlausan fjáraustur hjá Ríkisútvarpinu. Þá fær bæjarstjórinn á Ísafirði sinn skammt í hressilegu Mannlífsviðtali.

Ø  Brúðkaup - Hamingja, hjónabandssæla, skilnaðir og öðruvísi kjólar.        

Ø  Pabbi þinn er í flokknum - Reynir Traustason lýsir skrautlegu sambandi sínu við Sjálfstæðisflokkinn.

Aldrei fleiri skilnaðir * Fríkirkjuprestur og lífsins undur * Lesendabréf * Stiklað á fréttum * Erlendar fréttastiklur * Starfið mitt * Olof Palme * Mannlífið * Myndlistargagnrýni * Kaffihúsaspekingurinn * Kvikmyndir * Lokasvar * Stílfimi og frásagnargáfur * Ingibjörg Sólrún yfirheyrð *



 

eplice - System error
 
Error has occured, press the back button on your browser.
Please try again later
 error description :



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.