Mannlíf

ml0707

Óvinur Íslands?

Halim AL, óvinur Íslands númer eitt, leysir frá skjóðunni í einstöku Mannlífsviðtali.

Halim AL var á sínum tíma einn hataðasti maður á Íslandi eftir að hann nam dætur sínar og Sophiu Hansen á brott.

,,Það er þó fráleitt að ég sé óvinur Íslands því þvert á móti er ég Íslandsvinur. En ég var aðeins venjulegur faðir að berjast fyrir velferð barnanna minna. En ég varð fyrir fordómum vegna þess að ég er Tyrki.“

,,Hún kom inn í eldhús, tók lokið af pottinum og hrækti í matinn. Það var hryllilegt en átti eftir að versna.“

,,Það varð úr að hann kom þangað í lögreglufylgd og ætlaði að sækja þær. Ég sagði að það væri velkomið en hann yrði að fá samþykki þeirra. Annars gæti ég ekki fallist á það. Ég kallaði svo á stúlkurnar. Þær neituðu báðar að fara.

,,Ég hef fyrir löngu fyrirgefið Sophiu svikin og alla þá þjáningu sem hún olli mér. En ég mun engu gleyma þótt grasið á gröf minni verði metri að hæð. Og ég vona aðeins að Sophia eigi eftir að kynnast góðum manni og finna lífshamingju eins og ég.“

,,Allir Íslendingar eru velkomnir til mín.“

Friður óttans - Forsvarsmenn í Sjálfstæðisflokknum vildu láta gjaldfella skuldir Styrmis Gunnarssonar, ritstjóra Morgunblaðsins. Sverrir Hermannsson, þáverandi bankastjóri Landsbankans, neitaði að verða við kröfunni. Í grein Jóhanns Haukssonar er skýru ljósi varpað á málið og sagt frá týnda bókarkaflanum úr sögu Sverris Hermannssonar.

24 klukkustundir - Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur les í niðurstöður kosninganna og segir frá sólarhringnum eftir að kjörststöðum var lokað.

Erlend fréttaskýring: Maður fátæka fólksins - Hugo Cháves, forseti Venesúela, er umdeildur, enda harður í horn að taka í sósíalisma sínum. Andstæðingar hans fá þó ekki ráðið við ást alþýðunnar á leiðtoganum.

Upphefðin kemur að utan - Íslenski dansflokkurinn fór sigurför um Kína nýlega. Katrín Hall, listrænn stjórnandi flokksins, segir frá dansútrásinni.

Blind hvunndagshetja á Grænlandi - Paulus Napatoq er þrettán ára drengur sem býr í Scoresbysund. Hann ferðast á hundasleðanum sínum og teflir sem væri hann alsjáandi.

Aðrir athyglisverðir liðir

Flottheit – Starfið mitt – Mannlífið –  Þetta er ... – Myndlist – Kvikmyndir – Lokasvar - Mikilvægast í lífinu – Stiklað á fréttum – Spennandi sólarhringur eftir kosningar – Þjóðernisátök við Eystrasalt – Lofgjörð til útlendinga – Glansmyndin fölnar – Sumarið er tíminn ... – Póstkort frá Pétursborg



 

eplice - System error
 
Error has occured, press the back button on your browser.
Please try again later
 error description :



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.