Mannlíf
TEKJUBLAÐ MANNLÍFS!
Tekjur 2500 Íslendinga!
Tekjublað Mannlífs kemur út á morgun. Í blaðinu eru birtar tekjur 2500 Íslendinga í öllum landshlutum.
Æðstu stjórnendur fyrirtækja, bankastjórar, athafnafólk, stjórnmálafólk, lögfræðingar og dómarar eru meðal þeirra sem komast á blað. Tekjur ríka og fræga fólksins taka eðli málsins samkvæmt töluvert pláss í blaðinu, enda tekur Mannlíf fullt tillit til þess að blað af þessu tagi hefur ekki síst þann tilgang að svala forvitni fólks um hagi þeirra sem mest ber á í samfélaginu.
Tekjublaðið bregður einnig ljósi á tekjur umönnunarstétta og fólks sem vinnur mikilvæg láglaunastörf auk þess sem mánaðarlaun tuttugu áberandi bloggara eru tilgreind. Tekjublaðið nær því yfir samfélagið allt og býður upp á áhugaverðan samanburð á þeim gríðarlega mun sem er á tekjum þeirra hæst og lægst launuðu og sýnir svart á hvítu þann mikla stéttamun sem hefur verið að myndast í samfélaginu á síðustu árum.
Launatölurnar í tekjublaðinu eru byggðar á álögðu útsvari, eins og það birtist í álagningaskrám og gefa vísbendingu um laun viðkomandi einstaklinga, en taka ekki á einstökum liðum eins og fjármagnstekjum, tekjum af vöxtum, arði eða söluhagnaði.

