Mannlíf
Hættulegustu barnaníðingarnir
Hættulegustu barnaníðingarnir
Íslenskt samfélag sker sig nokkuð úr í samfélagi þjóðanna þegar kemur að umfjöllun og uppljóstrunum um dæmda menn. Þótt einstaklingar hafi verið dæmdir fyrir þungar sakir þykir víða í samfélaginu sjálfsagt að segja ekki nöfn þeirra opinberlega. Á Íslandi eru engar upplýsingar um það að hafa hvort barnaníðingur eða hættulegur ofbeldismaður flytur í nágrenni fólks.
Hnattræn hlýnun ógnar
Öfgakenndar sveiflur í veðri hafa aldrei verið jafn miklar og á þessu ári og nægir að nefna gríðarlegar rigningar og flóð í Bretlandi, miklar rigningar í Kína og þrúgandi hitabylgju í suðurhluta Evrópu. Íslendingar hafa heldur ekki farið varhluta af þessu og sumarið hefur verið óvenju hlýtt. Þjóðin hefur tekið hitanum fagnandi og grillar og drekkur bjór sem aldrei fyrr en til lengri tíma litið getur þessi breyting tæplega talist mikið fagnaðarefni.
Hollywood og sjálfsmynd Bandaríkjanna
Kvikmyndaverksmiðjan í Hollywood hefur lengi horft til hræringa í bandarísku þjóðlífi og hefur stefnt leynt og ljóst, meðal annars undir þrýstingi frá Hvíta húsinu, að því að draga upp jákvæða mynd af Bandaríkjunum. Kúrekamyndir eru nátengdari sjálfsmynd Bandaríkjamanna en flestar aðrar kvikmyndagreinar en í þeim berst hinn frjálsi útlagi iðulega gegn vondu mönnunum til að bjarga þeim sem minna mega sín og eru kúgaðir.
McDonald´s-trúðar og Jóar
Það hefur verið áhugavert að fylgjast með þróun mótmælenda síðastliðin sumur. Umhverfissamtökin Saving Iceland eru þar atkvæðamest. Það eru krakkarnir sem mála sig eins og trúðar og láta svo handtaka sig. Í raun má ekki kalla þá mótmælendur lengur. Aðgerðarsinni er hið nýja orð í pólitísku orðræðunni.
Lokasvar lögfræðings
Húnvetningurinn Þorbjörg Inga Jónsdóttir er valkyrja. Hún starfrækir eigin lögmannsstofu, Lagaþing, en jafnhliða því er hún formaður Kvenréttindafélags Íslands.
Að duga eða drepast, það er spurningin!
Mona Sahlin stendur á fimmtugu og er tekin við í brúnni hjá sænska Jafnaðarmannaflokknum. Hún er þriggja barna móðir, tilfinningamanneskja sem hefur gengið í gegnum ýmislegt á löngum ferli.
Síðasti bóndinn á Sandi
Á Ingjaldssandi, afskekktum dal úti við ysta haf vestur á fjörðum, býr Elísabet Pétursdóttir bóndi ásamt ungum syni sínum. Hún er síðasti bóndinn í sveitinni og þraukar enn, þrátt fyrir að skilyrðin séu erfið og stormurinn stundum beint í fangið.

