Útgáfa

so0709

Fróðleikur að hausti

18.10.2007

Rússneska byltingin – Bylting eða valdarán, það er spurningin. Við segjum söguna af því þegar Lenín og bolsévikar hans náðu völdum í stærsta ríki heims.

Reið um alla Evrópu – Casanova ferðaðist um alla álfuna og hvarvetna lágu konur í valnum, búsna ánægðar að því er hann sjálfur hélt fram. Sigrar hans urðu á endanum 122 og þætti ekki öllum mikið nú á dögum.

Spútnik hóf kapphlaupið um geiminn – 50 ár eru nú liðin síðan Sovétmenn skutu upp fyrsta gervitunglinu sem kallar var Spútnik. Með því hófst magnað kapphlaup stórveldanna um yfirráð í geimnum.

Hún elskaði Hitler – Hann hæddist að henni opinberlega, fór í felur með samband þeirra en kaus að kvænast henni að lokum. Og hún stóð sem klettur við hlið hans – jafnvel í dauðanum.

Síðasti grænlendingurinn – Hvað varð um byggðir norrænna manna á Grænlandi? Við veltum fyrir okkur hugsanlegum skýringum á hinu dularfulla og algera hvarfi norrænu byggðarinnar.

Fyrstu reykingarmennirnir – Indíánar í Ameríku voru fyrstu nikótínfíklar sögunnar. Þegar nikótín var fyrst kynnt til sögu í Evrópu var það talið læknislyf.

Grafið úr gleymsku – Það gerðist í október – Þúsund orð – Spurningar og svör – Í stuttu máli – Rómversku vegirnir – Furðusagan – Krakkasagan – Sögugetraunin



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.