Útgáfa

hh0714

Hönnunarblaðið!

4.11.2007

Það fer varla fram hjá neinum að hönnuðir og hönnun ýmiss konar er á fleygiferð þessa dagana. Ekki það að hönnuðir hafi ekki verið iðnir við kolann síðustu áratugi – þeir eru aftur á móti komnir meira inn í umræðuna og almenningur hefur meiri áhuga og skilning á verkum þeirra. Áhuginn, bættar aðstæður og tækniframfarir skila sér síðan í meiri grósku sem gerir það að verkum að hönnun í flestum greinum og út um allan heim hefur sjaldan eða aldrei verið á jafnmikilli siglingu. Hvert sem litið er eru ný mörk sett og þau gömlu grafin.

Herdís í Saltfélaginu – Herdís og Sturlaugur fluttu í nýju íbúðina í Hlíðunum, ásamt börnum sínum fjórum, í byrjun júlí eftir aðeins tveggja vikna framkvæmdir. Herdís segir blaðamanni ótrúlega sögu af niðurrifi og uppbyggingu sem enginn trúði á í byrjun.

Með hljóðverið í kjallaranum – Í Suðurhlíðunum búa þau Gunnar Árnason hljóðmeistari og Anna Lóa Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri hljóðupptökuversins Upptekið, ásamt börnunum sínum. Hjónin vinna bæði heima en í kjallara hússins er hljóðverið Upptekið.

Í penthouse–íbúð í Vesturbænum – Í nýju lyftuhúsi í gamla Vesturbænum býr Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir og Páll Þórhallsson lögfræðingur ásamt sonum þeirra tveimur. Ár er síðan þau fluttu heim frá Frakklandi og hafa þau því haft nógan tíma til að koma sér vel fyrir.

Bjargvætturinn í Bergstaðastræti – Við Bergstaðastræti í Reykjavík stendur lítið, fallegt hús sem fyrir ekki svo löngu mátti aðeins kalla lítið því það var langt frá því að vera fallegt. Annað er uppi á teningnum nú eftir að „Siggi smiður“ mætti til leiks.

40 síður af ferskri hönnun

Hitt og þetta – Spurt og svarað – Reykjavík city.com – 10 hlutir – Ægifögur glös – Hús og híbýli langar í ... – Nýjar búðir – Áskrifendatilboð – Uppáhaldshúsið – Smekkfólkið

 

 



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.