Útgáfa
Hættulega girnilegt!
Út er komið villibráðarblað aldarinnar þar sem er að finna leiðbeiningar um matreiðslu á margskonar villibráð. Auk allrar innlendu villibráðarinnar eins og rjúpu, anda og gæsa fæst nú innflutt villibráð sem sum hver er framandi. Hráefnið er hins vegar geysilega gott og við leiðbeinum fólki hvernig það á að bera sig að við matreiðsluna. Þar er að finna forrétti, aðalréttir og eftirrétti. Ragnar Freyr læknir og matarbloggari elda í jólamatinn sinn og leyfði okkur að fylgjast með. Lesendur fá allt sem þeir þurfa fyrir villibráðareldamennskuna í þessu tölublaði Gestgjafans.
Aðalréttir úr íslenskri villibráð
Heiðagæs, rjúpa á gamla og nýja mátann, stokkönd, hreindýr og margt margt fleira má finna í þessum þætti sem villti kokkurinn sá að sjálfsögðu um.
Nú er öndin önnur ...
Í dag fást yfir 20 tegundir af erlendri villibráð hér á landi. Það er af sem áður var ...
Matarbloggari Íslands er læknir!
Ragnar Freyr hefur geysilegan áhuga á matargerð og heldur úti bloggsíðu þar sem hann gefur uppskriftir og er með hugleiðingar um mat. Hér eldar hann dýrindis villibráð fyrir stórfjölskylduna.
v Hreindýraveisla á Héraði
v Forréttir úr íslenskri villibráð
v Önd – skref fyrir skref
v Svartfugl – skref fyrir skref
v Rjúpa – skref fyrir skref
v Eitt vín – einn réttur
v Sunnudagskakan
v Meðlætið með villibráðinni
Allt þetta og margt margt fleira í nýju og glæsilegu tölublaði Gestgjafans!

