Útgáfa
Jólablaðið!
Jólablaðsins hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu en það hefur verið eitt söluhæsta tölublað tímaritsins fá upphafi. Nú bregður svo við að jólablað Gestgjafans hefur aldrei verið stærra eða 196 blaðsíður. Þar er að finna jólalegt og áramótalegt efni, bæði skreytingar og uppskriftir sem henta breiðum hópi, hvort sem lesendur vilja grænmetismat, sykurlausan mat eða bara hefðbundinn jólamat.
Úlfar sýnir t.d. aðferðir við að meðhöndla og elda kalkúna, útbúa fyllingar og sósur, eftirréttirnir eins og ísinn eru teknir fyrir og alltaf höfum við í huga að matargerðin sé einföld.
Meðlætið fær sinn veglega sess en það gerir oft punktin yfir i-ið í góðri maltíð.
Hugmyndir að því hvernig má útbúa jólagjafir sem má borða og hverngi útbúa má freistandi jólakonfekt eru á mörgun blaðsíðum enda sífellt vinsælla efni.
Nokkrar veislur voru myndaðar og þar er að finna skemmtilegar hugmyndir varðandi jólaskreut og mat enda fengum við hugmyndaríkt og frjótt fólk til liðs við okkur.

