Útgáfa

hh0716

Það besta!

13.12.2007

Árið 2007 hefur verið viðburðaríkt fyrir tímaritið Hús og híbýli. Aldrei áður hafa verið gefin út jafnmörg tölublöð á einu ári, alls 16 talsins. Í haust ákváðum við einnig að stækka brotið á blaðinu þannig að síðurnar eru nú stærri og myndirnar njóta sín því enn betur en áður. Þá sameinaðist tímaritið Veggfóður Húsum og híbýlum í byrjun árs.

Auk alls þessa varð blaðið 35 ára á árinu en það er meðal elstu tímarita landsins sem koma enn reglulega út. Árið 1972 leit fyrsta tölublað Húsa og híbýla dagsins ljós og hefur það komið út nærri því mánaðarlega, linnulaust, frá áramótunum 1979-1980. Blaðið heldur enn sínu striki og nýtur nú meiri vinsælda en nokkru sinni fyrr. Enda eykst áhugi fólks á að fegra híbýli sín stöðugt auk þess sem vöruúrvalið sem býðst okkur í hinum fjölmörgu verslunum landsins hefur aldrei verið meira. Þá stendur íslensk hönnun í blóma og byggingarlistin hefur náð nýjum hæðum.

Margt áhugavert rataði á síðurnar okkar á árinu og tökum við saman eftirminnilegustu innlitin og umfjallanirnar aftar í blaðinu. Af mörgu skemmtilegu var að taka, allt frá ævintýrahöll Bergljótar Arnalds og vinnustofu Steingríms Eyfjörð til lúxusíbúðar í Skuggahverfinu og ferðalags um Flatey. Kíkið endilega á það og annað skemmtilegt efni blaðsins og sjáumst síðan á nýju ári.

Magnað hús á Nesinu
Elínrós Líndal og Steinþór Gunnarsson, forstöðumaður verðbréfamiðlunar Landsbanka Íslands, eiga afar glæsilegt og hátíðlegt heimili á Seltjarnarnesi.

Skandinavískur sjarmi
Í friðsælum bæ rétt fyrir utan Osló búa hjónin Line og Sigurd ásamt börnum sínum. Í þeirra fallega húsi er því gamla gert hátt undir höfði, bæði þegar kemur að innanstokksmunum og jólahefðum.

Margrét og Valur Fannar
Hjónin Margrét Einarsdóttir og Valur Fannar Gíslason keyptu nýlega verslunina Siu á Laugavegi. Þau búa í huggulegri íbúð í Kópavogi ásamt börnum sínum tveimur.


Þrjú áramótaborð
Við tókum okkur til og lögðum á borð í anda áramótanna með tilheyrandi blómum, kampavíni og skrauti.

Það besta árið 2007
Eftir skemmtilegt ár með metfjölda útgefinna tölublaða tókum við á ritstjórninni saman eftirminnilegustu innlitin og umfjallanir ársins. Af mörgu skemmtilegu var að taka. Kíkið á afraksturinn!

Hitt og þetta - Spurt og svarað – Búðaráp - Hús og híbýli langar í ... - Nýjar búðir – Áskriftartilboð – Uppáhaldshúsið - Smekkfólkið



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.