Útgáfa

ge0716

Ljúffeng hollusta bestu réttirnir

27.12.2007

Þetta síðasta tölublað ársins er tileinkað léttum réttum, eftir þunga matinn sem tilheyrir hátíðunum er gott að slaka aðeins á og skipta yfir í hollustuna. Meðfylgjandi er svo aukablað sem inniheldur 60 bestu uppskriftirnar fyrir árið 2007.

ggbest07Bestu uppskriftirnar 2007
Með hjálp lesenda voru valdnar bestu uppskriftir ársins 2007. Að venju var úr vöndu að ráða því á árinu hafa rúmlega 1100 uppskriftir birst í Gestgjafanum. Lesendur hafa verið duglegir að gefa okkur ábendingar um rétti sem slegið hafa í gegn í eldhúsi þeirra og þökkum við þeim fyrir hjálpina. Blaðinu er skipt í fjóra kafla; forrétti og smárétti, aðalrétti, meðlæti og kökur og eftirrétti.

Ljúffeng hollusta
Ávaxtadrykkir eru ekki bara hollir heldur líka geysilega fallegir. Næringin okkar þarf nefnilega að vera falleg líka, þannig rennur hún ljúflegar niður. Sannfæringin um að maturinn sem við látum ofan í okkur sé að gera okkur gott, þrátt fyrir allt tal um óhollustu, ber okkur sennilega hálfa leiðina, ef ekki alla.

Við leyfum okkur meira en venjulega þegar hátíð er í bæ, vitandi það að góð fyrirheit verða svo látin rætast (eða ekki). Í blaðinu er því að finna nokkrar greinar sem eiga það sameiginlegt að þar er hugað að hollu mataræði. Þar er til dæmis að finna viðtal við næringarþerapista, þátt um hollar bökur og annan um holla safa og hveitikím svo nokkuð sé nefnt.

Við á Gestgjafanum eigum það sammerkt með flestum lesendum okkar að finnast allar öfgar í mataræði fremur leiðigjarnar. Þess vegna er alls staðar að finna uppskriftir sem freista en þess er samt gætt að hollustan sé líka með í för. Við kjósum að aðhyllast kenninguna sem segir að hóf sé best í öllu og allar öfgar óskynsamlegar hvort sem um er að ræða í mat eða drykk.

·         Pítsur, hamborgarar, kex, sushi eldað á hollan og ljúffengan máta.
·         Bökur - grófar, sætar, saltar og ætar
·         Safar – Yngjandi, grennandi, fegrandi djúsí drykkir og allra meina bót
·         Keila, silungur, saltfiskur og lax
·         Vínsíðurnar Domnique og Eymar skrifuðu stórskemmtilegar greinar um þær víntegundir sem
           ber hæst í vínheiminum þessa dagana.
·         Veitingahúsarýni Samantekt fyrir árið 2007 er viðfangsefni rýnanna okkar að þessu sinni.

 

Njótið vel!

 



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.