Útgáfa
Ljósablaðið
Nú, þegar sólin er tekin að hækka á lofti, þótti okkur við hæfi að kíkja í búðir og velja nokkra af flottustu lömpum og loftljósum bæjarins. Að venju er úrvalið gríðarlega mikið og af nægu að taka. Annars einkenna einstaklega flott innlit blaðið að þessu sinni.
Annars einkenna einstaklega flott innlit blaðið að þessu sinni. Hjónin Óttar Guðnason kvikmyndatökumaður og Klara Thorarensen verslunarkona hafa komið sér mjög vel fyrir í glæsilegu einbýlishúsi í Garðabæ. Þá vonum við að lesendur hafi gaman af því að lesa um glæsilega fjölbýlishúsið á horni Njálsgötu og Barónsstígs í Reykjavík þar sem arkitektarnir Theresa Himmer og Kristján Eggertsson búa á annarri hæð. Saga hússins er meira en lítið áhugaverð en þar bjó Jóhannes Kjarval á fimmta áratug síðustu aldar og málaði mörg af meistaraverkum sínum.
Díana Bjarnadóttir bauð okkur einnig í heimsókn en hún flutti nýlega til landsins eftir margra ára dvöl erlendis. Helga Guðrún Vilborgardóttir er einnig að flytja heim til Íslands. Við náðum aftur á móti að kíkja á skemmtilega íbúð hennar og fjölskyldu hennar á Íslandsbryggju í Kaupmannahöfn áður en flutningar hæfust.
Hjá Ásgeiri Erni Hlöðverssyni verkfræðingi mætti okkur síðan piparsveinaíbúð með öllu tilheyrandi. Þar er Playstation 3, flatskjár, rúmgott eldhús, La-Z-Boy-stóll og fleira viðeigandi. Ásgeir hefur sérhæft sig í byggingu háhýsa og er því í framvarðasveit þeirra sem eru að þróa byggingarsögu þjóðarinnar ört þessi misserin. Nú á árinu verður spennandi að fylgjast með Ásgeiri og öðrum sem hanna og reisa hvert glæsihýsið á fætur öðru.
Kjarval var í lyftunni okkar
Arkitektarnir Kristján Eggertsson og Theresa Himmer búa í virðulegu fjölbýlishúsi á horni Barónsstígs og Njálsgötu sem á sér skemmtilega sögu.
Klara og Óttar
Hjónin Óttar Guðnason og Klara Thorarensen eiga glæsilegt hús í Garðabæ þar sem þau búa ásamt börnum sínum. Óttar starfar sem kvikmyndatökumaður víða um heim.
Frá Hollandi í Norðlingaholt
Díana Bjarnadóttir er flutt heim til Íslands með manni sínum eftir mörg viðburðarík ár erlendis. Þau búa í göngufæri við Heiðmörkina og hesthúsin sem spila stóra rullu í lífi þeirra.
Daniel Libeskind
Arkitektinn Daniel Libeskind er þekktur fyrir nýstárlegar og frumlegar byggingar. Hann teiknaði meðal annars Gyðingasafnið í Berlín og nýja svæðið þar sem tvíburaturnarnir í New York stóðu.
Piparsveinaíbúð með öllu
Ásgeir Örn Hlöðversson verkfræðingur á heima í piparsveinaíbúð þar sem fátt vantar. Þar er Playstation 3, flatskjár, rúmgott eldhús, La-Z-Boy-stóll og góður andi í lofti.
Íslensk einbýlishús / Smekklegur arkitektúrnemi í Kaupmannahöfn / Góð hugmynd frá Völu Matt / Okkur langar í .../ 10 hlutir / Nýjar búðir / Áskrifendatilboð / Vissir þú .../ Uppáhaldshúsið

