Útgáfa

ge0801

Nú er það rómó!

17.1.2008

Gestgjafinn er á rómantísku nótunum og tengjum mat við lífsins lystisemdir á ýmsan máta. Við rannsökuðum leyndardóma indverskrar matargerðar sem óhætt er að segja að einkennist af skemmtilegum litum og hita í bragði. Heitir drykkir á kaldasta tímanum er lúxus sem við eigum að leyfa okkur þegar við slöppum af eftir vinnudaginn. Leiðbeiningar um slíka lúxusdrykki er að finna í blaðinu auk litlu þáttanna um allt sem er skemmtilegt.

Litir og hiti
Indversk matargerð er ein sú vinsælasta um þessar mundir. Litir og hiti eru einkennandi fyrir indverska rétti sem undantekningalaust eru gómsætir.

Heitir drykkir
Hvað er meira viðeigandi en heitir drykkir á rómantískum vetrarkvöldum. Sirrý setti nokkra girnilega saman.

Heillað á hálftíma
Að borða saman er stór hluti af tilhugalífinu eins og Sirrý segir í grein sinni þar sem hún leggur til girnilega rétti sem krefjast ekki mikillar fyrirhafnar.

Þrep fyrir þrep
Úlfar bjó til cordon bleu sem er uppáhald margra og í ljós kemur að það er ekki svo erfitt að setja saman. Hér sýnir hann í máli og myndum hvernig best er að fara að.

Gómsætt án sykurs
Hanna er á rómantísku nótunum í takt við þema blaðsins og hefur alltaf í huga að minnka sykurneyslu.

Eitt vín – einn réttur
Nú sat snillingurinn Sveinn Kjartansson á Fylgifiskum fyrir svörum Dominique sem fékk hann til að búa til glæsilegan fiskrétt með þrúgunni pinot gris.

Pastaveisla hjá Paolo
Paolo Turchi og Sigríður Einarsdóttir kunna sitthvað fyrir sér í ítalskri matargerð.

Kynæsandi matur
Hér fjallar Gerður um hráefni til matargerðar sem vitað er að hafa heit áhrif á okkur.

Ritstjóraspjall / Spurt og svarað / Torgið / Í uppáhaldi / Árstíðin á markaðnum/ Dominique er frumleg að vanda og fjallar um osta og ananas / Búðaráp / Allrahanda / Sunnudagskakan / Molar/Bix / Vínsíðurnar / Veitingahúsarýni



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.