Útgáfa
Splunku Nýtt Líf!
Ísafold og Nýtt Líf hafa sameinast undir nafninu Nýtt Líf. Ritstjórar eru tvær ungar konur, þær Ásta Andrésdóttir, fyrrverandi aðstoðarritstjóri á Nýju Lífi og Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, sem var áður aðstoðarritstjóri á Ísafold.
Áskrifendahópar Nýs Lífs og Ísafoldar hafa verið sameinaðir undir nýju og breyttu Nýju Lífi.Nú verður blaðinu skipt í fimm hluta, auk forsíðuviðtals og tískuþáttar, en þeir eru sem hér segir: Heitt: fatnaður – fylgihlutir – flottheit.
Menning: sjáðu – heyrðu – lestu – njóttu.
Vettvangur: glósur – greinar – ferðir – framtíðin.
Fegurð: förðun – hár – nýjungar – dekur.
Hann / hún: sambönd – sjálfsrækt – pistlar.
Inni í þessu fyrsta tölublaði er enn fremur 35 síðna blaðauki um heilsu og heilsurækt. Þar er úttekt á bestu heilsulindum landsins, fjallað um detox að hætti Taílendinga, skemmtilegri líkamsrækt, eins og t.d. fimleika fyrir fullorðna, og leiðir til að gera rassinn stálharðan
Baltasar Kormákur prýðir forsíðu fyrsta tölublaðsins. Í einkaviðtali ræðir hann um glímuna við egóið, ástina og mikilvægi þess að horfast í augu við dauðann til þess að geta lifað lífinu til fulls. Hann fer einnig yfir það sem hann langar til að gera áður en hann deyr.
Eldhugar Íslands eiga það sameiginlegt að vera framkvæmdaglaðir og kraftmiklir. Allir fylgja þeir eigin sannfæringu og skara fram úr, hver á sínu sviði. Við birtum einstaka tuttugu síðna portrettseríu af þeim sem Vera Pálsdóttir tók.
Í menningarhluta blaðsins er ítarlega fjallað um bækur, tónlist og myndlist. Þar er úttekt á blaðamönnum sem hafa markað sín spor í íslenskar glæpasögur, nú síðast með sjónvarpsþáttaröðinni Pressunni.
Barði Jóhannsson situr fyrir svörum. Hann ljóstrar t.d. upp áhuga sínum á myrkraverum. Hann segir að hann væri vampíra ef hann gæti hugsað sér að drekka blóð þar sem hann heillist mjög af vampírum og finnst sóun að sofa á nóttunni.
Yrsa Sigurðardóttir, rithöfundur og byggingarverkfræðingur, fer yfir ferilinn og lýsir reynslu sinni frá Kárahnjúkum.
Brynja Björk Garðarsdóttir kynnti sér líf og starf leikskólakennarans þegar hún starfaði sem slíkur í tvo daga á leikskólanum Garðaborg.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra sýnir á sér nýjar hliðar.
Níu síðna tískuþáttur teflir saman rokki og rómantík, litagleði og fágun og leiðbeinandi förðunarþáttur um gerviaugnhár er meðal efnis í þeim hluta blaðsins sem lýtur að fegurð.

