Útgáfa

hh0805

Skrifstofur

31.1.2008

Skrifstofur eru í brennidepli hjá okkur að þessu sinni enda eyða sífellt fleiri stórum hluta lífsins í aflokuðu skrifstofurými. Það er auðvelt að missa einbeitingu og líða óþægilega á sumum skrifstofum. Það er því ekki vitlaust að vanda til verksins þegar kemur að því að útbúa eða endurskipuleggja skrifstofuna, hvort sem það er hjá fyrirtækinu eða heima við.

Skrifstofur – heima og heiman

Flest verjum við lunganum úr deginum í vinnunni. Fyrirtæki leggja mismikið í að fegra vinnustaðinn en æ algengara er að finna fagurlega hannaðar nútímahallir með öllum þægindum sem hugsast getur. Hús og híbýli skoðuðu skrifstofuflóru bæjarins, bæði í heimahúsum og fyrirtækjum.

Flott listapar í Hlíðunum

Hlaðgerður Íris Björnsdóttir og Aron Reyr Sverrisson búa í sjarmerandi íbúð þar sem húsgögn með „sál“ eru áberandi, ásamt flottum málverkum eftir hjónin sem bæði eru myndlistarmenn.

Bjartasta von byggingarlistarinnar

Bjarke Ingels er ungur danskur arkitekt sem hefur með ferskri nálgun, djörfung og áræðni lagt kapp á að rjúfa hefð andstæðra sjónarmiða í heimi arkitektúrsins, en þau snúast að mestu leyti um rómantíkina og raunsæið.

Íslenskt heimili við konungshöllina

Í hjarta Kaupmannahafnar, í næsta nágrenni við íverustað konungsfjölskyldunnar, hefur íslensk fjölskylda komið sér upp heimili sem er hennar afdrep bæði í fríum og tíðum viðskiptaferðum.

Heilsubyggð í Hveragerði

Í Hveragerði hefur risið „heilsubyggð“ í kringum Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Lækjarbrún. Soffía Stefánsdóttir og Sigurður Bergsson fluttu nýlega lögheimili sitt þangað frá Hafnarfirði.

Hitt og þetta /Spurt og svarað / Okkur langar í ? / Góð hugmynd / Skúrinn / 10 hlutir / Nýjar búðir  / Áskrifendatilboð / Vissir þú ... / Uppáhaldshúsið



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.