Útgáfa
Fréttir líðandi stundar
Mannlíf er fréttatímarit og kemur nú út í fyrsta sinn í ritstjórn Sigurjóns M. Egilssonar. Með honum eru valinkunnir blaðamenn, meðal annars skrifar Gunnar Smári Egilsson áhugaverðar greinar. Mannlíf fjallar um áhugavert efni líðandi stundar, bæði innlent og erlent, og birtir ítarlegar fréttir og fréttaskýringar í hverjum mánuði.
Meðal efnis í Mannlífi:
Samfélag múslíma á Íslandi - Salmann Tamimi hefur fylgst grannt með málefnum innflytjenda og er formaður Félags múslíma á Íslandi. „Ef þú ert útlendingur, þá þarftu nánast að vera fullkominn.“
Ekki dauður enn - Tryggvi Ólafsson myndlistarmaður er í Mannlífsviðtalinu að þessu sinni. Tryggvi slasaðist alvarlega og notast við hjólastól. Hann ætlar að flytja heim eftir áratuga dvöl í Kaupmannahöfn.
Drottningin - Eyþór Gunnarsson leikur á hammondorgel Karls heitins Sighvatssonar þegar Þursaflokkurinn kemur saman.
Árni Mathiesen nýtur minnstrar hylli ráðherranna
Upprisa Engeyinga - Fréttaskýring um fjármálamarkaðinn.
Það eru fleiri nýfluttir hingað til lands en múslímar. Mannlíf skoðaði málefni fleiri nýbúa.
Mannlíf rifjar upp eitt sérstakasta sakamál síðustu aldar, Hafskipsmálið. Þetta er fyrsti kaflinn í þeirri frásögn.
Fjölmiðlar - Ekkert þak yfir höfuðið - Lokasvar Stefáns Mána - í Grindavík vegna kvóta - Slóvenía sjarmerar - Listin að vera – Sögupersónan - Samskipti Írans og Bandaríkjanna - Saklaus í fangelsi - Danir þekkja ekki Björk - Samsæri um Kennedy-morðið - Sindri Sindrason sýnist stærri í sjónvarpi

