Útgáfa

ge0802

BARNABLAÐIÐ!

6.2.2008

Hugmyndir fyrir barna- og unglingaafmælin, auk föstu þáttanna sem eru fyrir allan aldur, eru nú á síðum Gestgjafans. Við veltum upp hugmyndum að veitingum fyrir börnin og svo veitingunum sem tilvalið er að hafa fyrir fullorðna fólkið sem fylgir börnunum. Við sóttum nokkra krakka heim sem sýnt hafa þessu skemmtilega áhugamáli, matargerðinni, mikinn áhuga og taka að jafnaði mikinn þátt í eldamennskunni á sínu heimili.

Afmælið hans Jacks Sparrow: Sirrý gefur hér fjölmargar hugmyndir fyrir skemmtileg sjóræningjaafmæli.
Hræringar: Hræringar, boost eða smoothies eru frískandi, bragðgóðir og hollir.
Fyrsta fæðan: Þegar barnið má fara að borða fasta fæðu er að sjálfsögðu mun hollara og ódýrara að útbúa matinn fyrir það frá grunni. Hér eru nokkrar hugmyndir að ýmiss konar grænmetismauki og grautum.
Þrep fyrir þrep:  „Það er ekkert til í ísskápnum!“ Úlli sýnir hér hvernig hægt er að gera dýrindis ommelettu úr „engu“. Unglingar elda:  Við fengum nokkra hressa og spræka unglinga úr Rimaskóla til að elda fyrir okkur uppáhaldsréttinn sinn.
Texture í London:  Úlli heimsótti nýverið veitingahúsið Texture í London en staðurinn hefur hlotið afar góðar viðtökur.

Ritstjóraspjall / Spurt og svarað / Mál og vog / Torgið / Í uppáhaldi / Búðaráp / Allrahanda  / Sunnudagskakan / Molar / Bix / Vínsíðurnar / Veitingahúsarýni / Árstíðir á markaðnum / Gómsætt án sykurs / Eitt vín – einn réttur / Grænmetisrétturinn / Korter í kvöldmat



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.