Útgáfa
Heyrðu, Sjáðu, Lestu
Annað tölublað NÝS LÍFS með breyttu sniði kemur út í þessari viku. Einstaklega falleg forsíða prýðir NÝTT LÍF að þessu sinni en þar er það Brynja Nordquist sem brosir sínu blíðasta. Fimmtíu og fimm ára gömul er hún enn ein af glæsilegustu konum þjóðarinnar. Brynja Björk Garðarsdóttir ræddi við Brynju um ferilinn, lífið með fjölskyldunni og aðskilnaðinn frá barni og barnabarni.
Vortískan
Vortískan að þessu sinni er óður til sumarsins og náttúrunnar sem tjáður er með litum, efnum, mynstri, daðri og húmor. 14 síðna úttekt á helstu tískustraumum fyrir bæði kynin.
Sjálfsmyndir sem sálfræðimeðferð
Rebekka Guðleifsdóttir barðist einu sinni í bökkum sem einstæð tveggja barna móðir.
Ekki missa trú á peninga
Ingólfur H. Ingólfsson, höfundur bókarinnar Þú átt nóg af peningum, skrifar um peninga og áhrifamátt viðhorfs fólks gagnvart þeim.
Fiðrildaáhrifin
Áttu aur og langar að láta gott af þér leiða? Ásta Andrésdóttir eyddi degi með þeim stöllum í UNIFEM.
Ég er svo feginn að vera á lífi
Rósar Örn Guðnason fann fyrir óþægindum í eista fyrir tveimur árum. Í ljós kom að æxli hafði myndast og Rósar var með krabbamein. Nú er meðferðinni lokið og Rósar er þakklátur fyrir að vera á lífi.
SIRKUS
Glóandi hjarta sem slær föstum takti, gleðiandi, regnbogi, vin. Vera Pálsdóttir tók einstakar myndir sem fanga óheflað og frjálst andrúmsloftið sem ríkir á Sirkus. Við spurðum mann og annan hvað væri svona merkilegt við þennan stað.
*10 atriði sem þú vissir ekki um karla.
*Vér mótmælum allir ... eða hvað?
*Játningar piparsveinsins.
*Blóðbönd.
*Stjörnuspá.
*SplunkuNýtt Líf á B5.
* Glæsilegar ljósmyndir eftir Rebekku Guðleifs
Heyrðu / Lestu / Sjáðu / Innblástur / Tjáðu þig / Út fyrir rammann / Vorförðun / Nýstárleg sviðasulta / Kúbanskur kokteill / Rauða hverfið

