Útgáfa
Svefnherbergisblaðið
Svefnherbergisblað Húsa & híbýla er komið út. Þar eru hugmyndir og innlit í 20 svefnherbergi og eitthvað við allra hæfi. Einnig eru góðu ráðin, hugmyndirnar og allt hitt líka í þessu tölublaði.
Svefnherbergi
Svefnherbergi eru ekki aðeins til að sofa í, heldur líka til að láta sig dreyma í, njóta samveru við maka eða bara slaka á. Hús og híbýli stóðst ekki mátið og laumaði sér inn í svefnherbergi landans.
Með útsýni yfir Tjörnina
Sólveig Arnarsdóttir leikkona býr í gömlu húsi í Þingholtunum ásamt fjölskyldu sinni. Hún elskar að horfa yfir Reykjavíkurtjörn eftir annasama daga á leikhúsfjölunum.
Skvísulöns hjá blómadrottningu
Ragnhildur Fjeldsted er ekta blómarós. Í nóvember síðastliðnum opnaði hún eina sætustu blómabúð bæjarins sem heitir því frábæra nafni Dans á rósum. Ragnhildur bauð vinkonum sínum í skvísulöns eitt fimmtudagshádegi.
Hugsjónamaðurinn Richard Rogers
Richard Rogers er einn áhrifamesti arkitekt Bretlands. Hann hefur ekki aðeins hannað margar af þekktustu byggingum samtímans heldur hefur hann verið öflugur talsmaður umhverfisverndar. Á síðasta ári vann hann hin virtu Pritzker-verðlaun sem eru ein æðstu verðlaun sem arkitekt getur hlotið.
Stílhreint í Stokkhólmi
Fjölskyldan Fredga fékk einn fremsta arkitekt Svía, Rahel Belatchew, til að hanna fyrir sig draumahúsið á lóð sem hún keypti sér í Näsbypark, sem er fallega gróið hverfi í Stokkhólmi.
Heimsókn á handverksheimili
Heima hjá Sigrúnu Helgadóttur í Árbænum er handverk í heiðri haft. Erfðagripir, mublur frá gamalli tíð og hlutir sem eiga sér langa sögu, ásamt ógrynni af handverki, gera heimilið einstakt.
Hitt og þetta / Spurt og svarað / Okkur langar í ... / 10 hlutir / Nýjar búðir / Áskrifendatilboð / Hönnunarsagan / Uppáhaldshúsið

