Útgáfa
Ljúfa lífið
Nýtt líf er komið út og þar á forsíðunni er engin önnur en Kristín Ólafsdóttir, kona Björgólfs Thors. Hún spjallar um þotulífið með Björgólfi Thor og einkasyninum, starfið með Unifem og ferilinn. Hún rifjar meðal annars upp þær stundir þegar þau Björgólfur Thor sóttu veitingastaði aðeins á þeim tíma dags sem hægt var að fá tvær máltíðir á verði einnar
Heimskonan Kristín Ólafsdóttir lifir ljúfa lífinu í London. Hún flýgur um heiminn þveran og endilangan og sækir ráðstefnur með Kofi Annan og Clinton og situr með Sean Connery til borðs í galakvöldverðum. Hún segist þó bara vera venjuleg stelpa úr Hvassaleitinu og það sé hálfsúrrealískt að lifa í þessari veröld sem hún tilheyrir nú. Það sem skipti þó mestu máli sé fjölskyldan, feðgarnir Björgólfur Thor og Daníel Darri.Baldur Freyr Einarsson er enginn engill. Hann er maður með fortíð. Hann afplánaði dóm fyrir líkamsárás sem leiddi til dauða ungs manns. Hann seldi konur, ofbeldi og fíkniefni – þar til hann fann Guð sem leiddi hann inn á betri veg. Baldur iðrast fortíðarinnar og gerir það eina sem hann getur gert í stöðunni; að verða betri maður og hjálpa öðrum.
Fyrsti svarti forsetinn í Bandaríkjunum varð til í 24 þar sem David Palmer var við völd. Allar líkur eru á því að Obama njóti nú góðs af því, enda var Palmer hinn fullkomni forseti.
Á Íslandi er 31 trúfélag skráð. Sum þessara félaga eru okkur hinum framandi eins og Vottar Jehóva sem neita blóðgjöf og Kirkja sjöunda dags aðventista sem fordæmir bæði getnaðarvarnir og fóstureyðingar.
Poppdúettinn BB&Blake skipa þau Magnús Jónsson leikari og Vera Sölvadóttir leikstjóri. Þau dreymir um að spila fyrir Madonnu og játa ýmislegt fleira í bráðskemmtilegu viðtali.
Heitt - Föt og fylgihlutir fyrir vorið.
Vestisjakkaföt.
Konur geta stolist í karlaföt og látið það ganga upp.
Innblástur - Listakonan Halla Gunnarsdóttir hefur getið sér gott orð fyrir skúlptúra sína.
Bröns - Bjóddu vinum þínum í bröns um næstu helgi. Við skulum gefa þér uppskriftir að notalegum réttum sem eru tilvaldir í brönsinn, tómatböku með geitaosti og gulrótarköku.
Lifandi London - Hótel, veitingastaðir, söfn og verslanir. Samantekt yfir allt sem þú þarft að vita til að upplifa ljúfa lífið í London.
Stjörnuspá / Partí / Hvaðan koma peningarnir? / Líkar yfirmanninum vel við þig? / Allsherjarorgía á Netinu / Afbrýðisemi / Heilbrigður lífsstíll / 10 atriði sem þú vissir ekki um karlmenn / Leiðari / Fólkið að baki blaðinu / Snyrtivöruland / Karlar með konukrem

