Útgáfa
Stóra eldhúsblaðið
Eldhúsblaðið er eitt aðaltölublað ársins hjá Húsum og Híbýlum. Blaðamenn og ljósmyndarar fóru út um allan bæ og tóku myndir af flottum eldhúsum hjá frábæru fólki og fengu hvarvetna meiri háttar móttökur.
Eldhús. Alls konar íslensk eldhús koma fyrir í Eldhúsblaði Húsa og híbýa. Við heimsækjum nokkra fremstu kokka landsins, skoðum skrýtin og skemmtileg eldhústæki og fræðumst um silfurhefð landans.
Herðubreið í heimahúsum. Síðastliðið haust gaf listakonan Roni Horn út bókina Herðubreið at Home..
Notalegt í Norðlingaholti. María Sigurðardóttir, nemi í mannauðsstjórnun og íþrótta- og Rope Yoga-kennari, er nýflutt í fallegt raðhús í Norðlingaholtinu ásamt Kjartani Kjartanssyni
Piparsveinn í London. Innanhússhönnuðurinn Isas Sastraada tók gamalt hús í gegn og innréttaði með appelsínugulu og hvítu í bland við dökkan við.
Eitt af þremur heimilum. Andri G. Arinbjarnarson á íbúð á 12. hæð í Sólheimum í Reykjavík þar sem útsýnið er stórfenglegt. Hann á einnig íbúð í London og hús í Sviss. Arkitektar hjá teiknistofunni Úti og inni sáu um hönnun íbúðarinnar í Reykjavík sem er stílhrein og glæsileg.
Hitt og þetta / Spurt og svarað / Okkur langar í ... / 10 hlutir / Skúrinn / Nýjar búðir / Áskrifendatilboð / Hönnunarsagan / Uppáhaldshúsið

