Útgáfa

ge0804

Súkkulaði - Súkkulaði - Súkkulaði

21.3.2008

Súkkulaði er þema þessa töublaðs. Súkkulaði er gott, hollt, frábært krydd í mat og fallegt. Hvað er hægt að biðja um meira? Allar þesar fullyrðingar passa við guðafæðuna súkkulaði. Þegar það er blandað sykri, eins og við þekkjum það oftast, verður til afurð sem er sannarlega ávanabindandi. En það þarf ekki að tengja súkkulaði eingöngu við sæta rétti eins og Úlfar sýnir lesendum í mjög skemmtilegri grein um súkkulaði í mat.

Hver er hin fullkomna súkkulaðikaka?               

Sykur er ekki það sama og sykur.  Sirrý segir okkur hvað hrásykur sé í raun og veru en úrval af hrásykri hefur aukist til muna í verslunum hér á landi. Hún fjallar einnig um muninn á sykurtegundum og hvað sé best að nota í hvað.

Soufflé – leikandi og létt.  Rétt samsett uppskrift, góður ofn, frauðform eða ofnfastir bollar og svolítil þolinmæði er allt sem þarf.

Dökkt súkkulaði smakkað blint.  Nokkrir súkkulaðiunnendur smökkuðu 15 tegundir blint og niðurstaðan er birt hér.

Súkkulaði – ekki bara í eftirmat!  Úlli sýnir hér hvernig við getum notað súkkulaði í mat.

Páskamorgunverður Rögnu og Kristjáns

Sáningartími kryddjurta og grænmetis.  Nú fara vorverkin að hefjast og sáning kryddjurta er eitt af þeim.

Spurt og svarað / Mál og vog / Torgið / Í uppáhaldi / Allrahanda / Súkkulaðiskraut / Eitt vín – einn réttur / Molar/Bix / Vínsíðurnar / Árstíðin á markaðnum / Þrep fyrir þrep / Gómsætt án sykurs / Korter í kvöldmat / Sunnudagskakan / Grænmetisrétturinn / Búðaráp



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.