Útgáfa

ml0804

Kallar á fagfólk

27.3.2008

Jón Baldvin Hannibalsson ræðir um Ísland og Evrópusambandið. Jón Baldvin kallar á fagfólk til stjórnarstarfa í Seðlabankanum og gagnrýnir krónuna.

Ása Björk Ólafsdóttir fríkirkjuprestur er í Mannlífsviðtalinu. Hún hóf ferilinn í leikmynd og búningum í leikhúsum landsins en er núna mætt, í eigin búningi, fyrir framan sóknarbörn Fríkirkjunnar í Reykjavík.

Kostnaður við rekstur Alþingis hefur blásið út undanfarin ár. Mannlíf gerir úttekt á kostnaði við rekstur þings og ríkisstjórnar.

·         Morð í geðrofi - Hvað gerist í höfði mæðra sem drepa börnin sín? Hvað er geðrof? Viðtal við 
          Pál Matthíasson, yfirlækni á geðdeild Landspítalans.

·         Bráðatæknar - Er þörf á læknum á sjúkrabílana? Mannlíf skoðar störf og menntun
          bráðatækna.

·         Hiszbollah og Hamas. Hvaða hópar eru þetta? Er von á að friður komist á?

·         Hitler kosinn kanslari Þýskalands. 75 ár frá valdatöku Hitlers.

·         Heimilisofbeldi er þjóðarskömm en talið er að allt að fjórða hver kona hér á landi hafi orðið
           fyrir líkamlegu ofbeldi einhvern tímann á ævinni.

·         Femínismi er það besta í heimi sem dísent pervert getur hugsað sér, segir Erpur 
          Eyvindarson í viðtali.

·         Íslenski dansflokkurinn með heilan hval á sviðinu.

·         Gaddakylfan -  Mannlíf og Hið íslenska glæpafélag blása til til hinnar árlegu 
           smásagnasamkeppni meðal glæpasagnahöfunda.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.